Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að Úkraínumenn væru tilbúnir til þess að hefja friðarviðræður við Rússa í Istanbúl hinn 15. maí næstkomandi, en að Rússar yrðu fyrst að samþykkja tillögu fjögurra af helstu ríkjum Evrópu um að gert yrði allsherjarvopnahlé á átökunum, sem ætti þá að gilda í 30 daga frá og með deginum í dag.
Þeir Emmanuel Macron Frakklandsforseti, Keir Starmer forsætisráðherra Breta, Donald Tusk forsætisráðherra Póllands og Friedrich Merz Þýskalandskanslari fóru til Kænugarðs á laugardaginn og funduðu þar með Selenskí.
Lögðu leiðtogarnir þar til að skilyrðislaust vopnahlé gengi í gildi frá og með deginum í dag, ellegar myndu ríkin fjögur auka enn þrýsting sinn á Rússa í formi viðskiptaþvingana, auk þess sem þau myndu veita Úkraínumönnum enn meiri herstuðning. Ræddu leiðtogarnir fimm jafnframt tillöguna símleiðis við Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti gaf í kjölfarið út yfirlýsingu á blaðamannafundi, sem haldinn var kl. 1 um nótt að staðartíma aðfaranótt sunnudags, þar sem hann sagðist reiðubúinn til þess að hefja á ný hinar svonefndu „Istanbúl-viðræður“ við Úkraínumenn, sem fóru út um þúfur á vormánuðum 2022. Sagði Pútín að í slíkum viðræðum yrði nauðsynlegt að taka á „grunnástæðum“ allsherjarinnrásar Rússa.
Pútín vék hins vegar ekki að vopnahléstillögu Evrópuríkjanna, en lagði til að upphafsdagur viðræðnanna yrði nú á fimmtudaginn, hinn 15. mars, í Istanbúl. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti sagði í gær að hann væri tilbúinn að vera gestgjafi viðræðnanna, en hann ræddi við Pútín í gær símleiðis. Sagði Erdogan við Pútín að nú gæfist gott tækifæri til að ná fram friði.
Mun mæta sjálfur til Istanbúl
Selenskí sagði í gær að þetta væri „jákvætt teikn“ frá Pútín en að nauðsynlegt væri að binda enda á átökin til þess að viðræðurnar gætu hafist á traustum grunni. Hann ítrekaði þau skilaboð síðar um daginn á Twitter-reikningi sínum, og sagði það ekki þjóna neinum tilgangi að halda áfram manndrápum. „Og ég mun bíða eftir Pútín í Tyrklandi á fimmtudaginn,“ sagði Selenskí jafnframt og bætti við að hann vonaði að Rússarnir myndu ekki „leita að afsökunum að þessu sinni“ fyrir því að hefja ekki vopnahlé eða viðræður.
Óvíst er hvert svar Rússa verður, eða hvort Pútín ákveði að mæta til viðræðna í Istanbúl. Macron Frakklandsforseti sagði hins vegar að hann gerði ráð fyrir að Rússar myndu samþykkja að hefja skilyrðislaust vopnahlé.
Merz Þýskalandskanslari sagði að tilboð Rússa um að hefja beinar viðræður við Úkraínumenn væri góðs vísir, en að það væri engan veginn fullnægjandi. „Við ætlumst til þess að Moskva samþykki vopnahlé þannig að alvöruviðræður geti átt sér stað. Fyrst verða vopnin að þagna, svo að samtalið geti hafist,“ sagði Merz í sérstakri yfirlýsingu í gær.
Trump Bandaríkjaforseti sagði að Bandaríkin myndu áfram vinna með báðum þjóðum til þess að tryggja frið í Úkraínu, og að mögulega væri þetta „frábær dagur“ í sögu beggja ríkja.