Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslandsmeistarar Vals og Porrino frá Spáni skildu jöfn, 29:29, í fyrri leik liðanna í úrslitum Evrópubikars kvenna í troðfullri höll í spænska bænum Porrino á laugardag.
Er því enn allt galopið fyrir seinni leikinn á Hlíðarenda á laugardag eftir viku, þar sem Valur freistar þess að verða fyrsta kvennalið Íslands til að vinna Evrópukeppni.
Leikurinn var afar kaflaskiptur fyrir Val. Valskonur náðu mest fimm marka forskoti í upphafi seinni hálfleiks en lentu undir þegar skammt var eftir. Að lokum skoraði Porrino jöfnunarmark á síðustu sekúndunni.
Margir leikmenn Vals hafa oft spilað betur en liðið sýndi gríðarlegan styrk þegar allur meðbyrinn var með heimaliðinu í jafnri stöðu í seinni hálfleik. Leikurinn var erfiður fyrir Valsliðið, í gríðarlega krefjandi aðstæðum. Spænsku stuðningsmennirnir voru stórgóðir og háværir og gerðu Valsliðinu erfitt fyrir. Um 50 stuðningsmenn Vals eiga hrós skilið fyrir að fylgja liðinu til Spánar og láta vel í sér heyra.
„Ég hef aldrei spilað í svona miklum látum. Maður heyrði ekki í dómurum, heyrði ekki í sjálfum sér eða neinum öðrum,“ sagði Þórey Anna Ásgeirsdóttir, markahæsti leikmaður Vals í leiknum með 11 mörk, í samtali við Morgunblaðið. Elín Rósa Magnúsdóttir á einnig hrós skilið fyrir stórgóðan leik.
Með aðeins meiri markvörslu og fleiri útileikmönnum sem taka af skarið í seinni leiknum ættu möguleikarnir að vera fínir fyrir Val. Nú þarf að fylla Hlíðarenda og sjá íslenskt félagslið vinna Evrópukeppni í fyrsta skipti á heimavelli.