Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að það væri jákvætt merki að Rússar virtust loks reiðubúnir til viðræðna, en Pútín Rússlandsforseti sagði í fyrrinótt að Rússar væru til í að hefja viðræður við Úkraínumenn í Istanbúl á nýjan leik
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að það væri jákvætt merki að Rússar virtust loks reiðubúnir til viðræðna, en Pútín Rússlandsforseti sagði í fyrrinótt að Rússar væru til í að hefja viðræður við Úkraínumenn í Istanbúl á nýjan leik. Sagði Selenskí að hann myndi mæta þangað sjálfur, en nauðsynlegt væri að efna til 30 daga vopnahlés, eins og fjögur af helstu ríkjum Evrópu lögðu til um helgina. » 13