Lykilmaður Ægir Þór Steinarsson reynir að fara fram hjá skagfirska Grikkjanum Giannis Agravanis í leiknum í Garðabæ í gærkvöld.
Lykilmaður Ægir Þór Steinarsson reynir að fara fram hjá skagfirska Grikkjanum Giannis Agravanis í leiknum í Garðabæ í gærkvöld. — Morgunblaðið/Birta Margrét
Ægir Þór Steinarsson fór gjörsamlega á kostum í gærkvöld þegar Stjarnan hreinlega valtaði yfir Tindastól í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta í Garðabæ, 103:74. Ægir tók leikinn bókstaflega í sínar hendur í seinni…

Ægir Þór Steinarsson fór gjörsamlega á kostum í gærkvöld þegar Stjarnan hreinlega valtaði yfir Tindastól í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta í Garðabæ, 103:74.

Ægir tók leikinn bókstaflega í sínar hendur í seinni hálfleiknum en hann skoraði alls 37 stig, gaf sjö stoðsendingar og tók sjö fráköst fyrir Garðabæjarliðið í leiknum.

Staðan er nú jöfn í einvíginu, 1:1, og þar með þarf minnst fjóra leiki til að útkljá baráttuna um meistaratitilinn. Liðin mætast í þriðja sinn á Sauðárkróki á miðvikudagskvöldið og síðan í fjórða sinn í Garðabæ næsta sunnudagskvöld.

Skagfirðingar áttu erfitt með að höndla mótlætið í síðari hálfleiknum. Þeir misstu Dimitrios Agravanis af velli í byrjun fjórða leikhluta og vegna ítrekaðra mótmæla hans fengu Stjörnumenn sex vítaskot í röð sem Ægir sá um að skora úr.

Skömmu síðar fékk Sigtryggur Arnar Björnsson líka brottvísun og Stjarnan náði í kjölfarið 30 stiga forystu þannig að öll spenna var úr leiknum löngu fyrir leikslok.

Auk Ægis skoraði Shaquille Rombley 17 stig fyrir Stjörnuna, Hilmar Smári Henningsson 16 og Orri Gunnarsson 14. Þá tók Jase Febres 15 fráköst.

Sadio Doucoure skoraði 18 stig fyrir Tindastól, Giannis Agravanis 17 og Dedrick Basile 16.