Upphaf Fyrstu skóflustungur voru teknar nú í vikunni. Frá vinstri talið: Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, og svo björgunarsveitarmennirnir Einar Ágúst Hjörleifsson og Tobias Már Ölvisson.
Upphaf Fyrstu skóflustungur voru teknar nú í vikunni. Frá vinstri talið: Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, og svo björgunarsveitarmennirnir Einar Ágúst Hjörleifsson og Tobias Már Ölvisson. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Framkvæmdir eru nú hafnar við byggingu björgunarmiðstöðvar á Flúðum. Fyrstu skóflustungurnar voru teknar síðastliðinn fimmtudag, hvar fyrir flokki fóru slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu og framverðir Björgunarfélagsins Eyvindar í Hrumannahreppi

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Framkvæmdir eru nú hafnar við byggingu björgunarmiðstöðvar á Flúðum. Fyrstu skóflustungurnar voru teknar síðastliðinn fimmtudag, hvar fyrir flokki fóru slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu og framverðir Björgunarfélagsins Eyvindar í Hrumannahreppi.

Í 1.200 fermetra húsi verður aðstaða slökkviliðs og björgunarsveitar. Þetta verður límtréshús með steinullareiningum sem Harri Kjartansson, húsasmíðameistari á Flúðum, ætlar að reisa. Jarðvinna er hafin og í framhaldi verður farið í smíðavinnu við sökkla og plötu. Reiknað er með að húsið verði komið upp og því lokað í desember næstkomandi. Allt á svo að verða tilbúið á næsta ári.

„Gamla slökkvistöðin á Flúðum er bygging síns tíma og að bæta aðstöðuna þar er mjög þýðingarmikið. Á þessum pósti erum við með tækjabíl og stóran tankbíl. Þá er einnig í flotanum bíll fyrir mannskap, en alls eru 14 manns í liðinu á Flúðum,“ segir Lárus Kr. Guðmundsson, aðstoðarslökkviliðsstjóri í Árnesýslu. „Við erum með öflugt lið í uppsveitunum; stöðvar á Flúðum í Árnesi, Reykholti og að Laugarvatni. Nýlega var svo ákveðið að koma upp stöð á Borg í Grímsnesi. Slíkt teljum við mjög mikilvægt því þar í sveit eru alls um 3.300 sumarhús. Þekkt er að eldshætta getur fylgt lífi og leik í sumarhúsum og því viljum við líka vera með sterka sveit á Borg.“

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson