Norður
♠ D3
♥ Á1092
♦ Á6
♣ KDG54
Vestur
♠ K9
♥ G873
♦ G1072
♣ 1062
Austur
♠ ÁG10762
♥ 65
♦ 53
♣ 983
Suður
♠ 854
♥ KD4
♦ KD984
♣ Á7
Suður spilar 6G.
Þeir fiska sem róa, segir máltækið, og það átti við í þessu spili úr bandarísku kvennalandsliðskeppninni nýlega. Við annað borðið varð lokasamningurinn 5♣ í norður sem vannst með tveimur yfirslögum en við hitt borðið komust Hjördís Eyþórsdóttir og Arti Bhargava alla leið í 6G.
Hjördís opnaði á 1G með suðurspilin, sýndi 14-17 punkta, og Bhargava spurði um háliti, sýndi lauflit og keyrði síðan í slemmu. Austur sagði alltaf pass og þegar Sylvia Shi í vestur fann ekki að spila út ♠K heldur valdi ♦10 átti Hjördís leik.
Hún drap útspilið með ás í borði og tók fimm sinnum lauf. Þegar síðasta laufið kom á borðið var Shi, sem hafði hent ♠9 í fjórða laufið, í vandræðum og valdi að henda hjarta. Þá fékk Hjördís fjóra slagi á hjarta og tólf slagi alls.
Shi gat hent ♠K í fimmta laufið en Hjördísi hefði þá án efa fundið að svína fyrir ♥G.