Gríski körfuknattleiksmaðurinn Dimitrios Agravanis leikmaður Tindastóls hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann vegna framkomu sinnar í öðrum úrslitaleik Stjörnunnar og Tindastóls á Íslandsmótinu í körfubolta í Garðabænum síðasta sunnudagskvöld. Stjarnan vann sannfærandi, 103:74, en Dimitrios átti afleita innkomu í liði Tindastóls. Það fauk síðan endanlega í Dimitrios í seinni hálfleik en þá lét hann dómara leiksins heyra það og var rekinn út úr húsi fyrir háttsemi sína en eftir það fór leikurinn frá Tindastóli. Í tilkynningu frá KKÍ kom fram að Dimitrios fengi eins leiks bann og missir hann því af leik númer þrjú annað kvöld.
Ísland og Færeyjar eru í öðrum styrkleikaflokki fyrir dráttinn í lokakeppni EM karla í handknattleik sem fer fram á fimmtudaginn. Portúgal, Noregur, Króatía og Spánn eru einnig í 2. flokki og geta ekki verið í riðli Íslands, og heldur ekki Danmörk, Svíþjóð eða Þýskaland úr fyrsta styrkleikaflokki. Nánar á mbl.is/sport/handbolti.
Handknattleikskonan Embla Steindórsdóttir er komin til Hauka frá Stjörnunni. Hún er 19 ára miðjumaður og var meðal markahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar í vetur með 123 mörk og 83 stoðsendingar.
Íslenskir keppendur fengu þrenn gullverðlaun á Norðurlandamótinu í júdó í Danmörku um síðustu helgi. Eyja Viborg og Viktor Kristmundsson sigruðu í sínum þyngdarflokkum í keppni 18 ára og yngri og landsliðsþjálfarinn Zaza Simonishvili sigraði í keppni 30 ára og eldri.
Roland Valur Eradze, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í handknattleik, hefur verið ráðinn markvarðaþjálfari karlalandsliðsins og yngri landsliða Íslands. Ásamt því mun hann fylgja eftir ungum og efnilegum íslenskum markvörðum sem valdir eru af afrekssviði HSÍ. Roland hefur undanfarna mánuði starfað í kringum karlalandsliðið, en hann var í þjálfarateymi liðsins á síðastliðinu heimsmeistaramóti.
Íslendingalið Aalesund vann magnaðan sigur á Noregsmeisturum Bodö/Glimt, 1:0, í 32 liða úrslitum norska bikars karla í knattspyrnu í Aalesund í gærkvöldi. Aalesund, sem leikur í B-deildinni, er því komið í 16 liða úrslit og mætir þar HamKam. Davíð Snær Jóhannsson lék allan leikinn og lagði upp sigurmark Aalesund fyrir Marius Andersen á 52. mínútu. Ólafur Guðmundsson var einnig í byrjunarliði liðsins en fór af velli á 70. mínútu.
Reynsluboltinn Carlo Ancelotti hefur verið ráðinn þjálfari karlalandsliðs Brasilíu frá og með 26. maí. Hann tekur við strax eftir síðasta leik Real Madrid á tímabilinu á Spáni. Ancelotti, sem er 65 ára gamall og einhver sigursælasti knattspyrnustjóri sögunnar, verður þá fyrsti erlendi þjálfarinn til að taka við brasilíska landsliðinu. Jafnframt er talið fullvíst að Xabi Alonso taki við starfi hans hjá Real Madrid en hann hætti með Bayer Leverkusen á dögunum.