Nú hendi ég ruslinu mínu í tunnur nágrannans. Mér er þá stefnt fyrir siðanefnd hverfisins og mér gert að taka ruslið til baka. Sögnin merkir þarna að dæma, úrskurða og talað er um að gera e-m að gera e-ð, úrskurða að hann skuli gera það

Nú hendi ég ruslinu mínu í tunnur nágrannans. Mér er þá stefnt fyrir siðanefnd hverfisins og mér gert að taka ruslið til baka. Sögnin merkir þarna að dæma, úrskurða og talað er um að gera e-m að gera e-ð, úrskurða að hann skuli gera það. Það þýðir að mér er nú fyrirskipað að hirða ruslið mitt, ég er látinn gera það.