Toppbarátta Þórdís Elva Ágústsdóttir fer vel af stað með Þrótti.
Toppbarátta Þórdís Elva Ágústsdóttir fer vel af stað með Þrótti. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal
Þórdís Elva Ágústsdóttir miðjumaður Þróttar var besti leikmaðurinn í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Þórdís lék mjög vel þegar Þróttur lagði Val að velli á Hlíðarenda í síðustu viku, 3:1, en þar skoraði hún eitt …

Þórdís Elva Ágústsdóttir miðjumaður Þróttar var besti leikmaðurinn í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Þórdís lék mjög vel þegar Þróttur lagði Val að velli á Hlíðarenda í síðustu viku, 3:1, en þar skoraði hún eitt mark og lagði annað upp gegn sínum fyrrverandi samherjum. Hún fékk tvö M í einkunn hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína.

Þórdís er 24 ára gömul og gekk til liðs við Þrótt fyrir þetta tímabil en hún lék á síðasta ári með Växjö í sænsku úrvalsdeildinni þar sem hún spilaði 24 af 26 leikjum liðsins og skoraði tvö mörk.

Hún er uppalin hjá Haukum og lék þar fyrstu fjögur árin í meistaraflokki, þar af eitt tímabil í efstu deild. Hún gekk síðan til liðs við Fylki og lék þar í þrjú ár, 2019 til 2021, en spilaði síðan með Val 2022 og 2023 þar sem hún varð Íslandsmeistari bæði árin og vann einnig bikarinn með liðinu árið 2022. Hún hefur leikið 110 leiki í efstu deild og skorað 15 mörk, lék sjö leiki með yngri landsliðunum og á þrjá leiki að baki með 23-ára landsliði Íslands.

Þórdís er í annað sinn í liði umferðarinnar á þessu tímabili en Þróttur á þrjá leikmenn í liði 5. umferðar.

Aldís Guðlaugsdóttir markvörður FH og Heiða Ragney Viðarsdóttir miðjumaður Breiðabliks eru í lið umferðarinnar í þriðja sinn í fyrstu fimm umferðunum en fimm leikmenn eru í liðinu í fyrsta skipti á þessu keppnistímabili og fjórar eru valdar í annað sinn.