— Morgunblaðið/Eggert
Matthías Davíð og Hálfdán Helgi Matthíassynir, sem skipa tvíeykið VÆB, keppa í kvöld fyrir Íslands hönd í fyrri undankeppni Eurovision í Basel. Þeir stíga fyrstir á svið og hefst atriðið á orðunum „Let's go!“ – sem Ásgeir…

Matthías Davíð og Hálfdán Helgi Matthíassynir, sem skipa tvíeykið VÆB, keppa í kvöld fyrir Íslands hönd í fyrri undankeppni Eurovision í Basel. Þeir stíga fyrstir á svið og hefst atriðið á orðunum „Let's go!“ – sem Ásgeir Páll, í Skemmtilegri leiðinni heim, benti á að væri sérstaklega vel við hæfi. Rúnar Freyr Gíslason, fjölmiðlafulltrúi íslenska hópsins, sagði í þættinum að bræðurnir nytu mikillar athygli í Basel og hefðu fengið mikla spilun. „Ég hef aldrei vitað annað eins. Þeir eru alltaf jákvæðir. Alltaf til í allt sem kemur upp,“ sagði Rúnar. Nánar á K100.is.