Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fyrsta skóflustungan að nýju íþróttahúsi sem reist verður í miðbæ Hveragerðis var tekin í gær. Þar komu að verki þrír bæjarfulltrúar hver frá sínu framboðinu, fulltrúar íþróttafélagsins Hamars og fólk úr félagi eldri borgara í bænum. Íþróttahúsið nýja verður bylting í íþróttaaðstöðu bæjarins og mun gefa bænum mikla gæðasérstöðu.
Nýja íþróttahúsið verður samhliða gamla íþróttahúsinu sem til staðar er og hægt verður að opna á milli húsana fyrir stærstu viðburði. Nýja íþróttahúsið verður nærri grunnskóla bæjarins og öðrum mikilvægum bæjarinnviðum og verður þetta allt til þess að styrkja heildina, segir Pétur G. Markan bæjarstjóri. Umrædd mannvirki eru sömuleiðis nærri miðbæjarsvæðinu í Hveragerði sem nú er verið að styrkja og endurskipuleggja í aðalskipulagsvinnu.
Í íþróttahúsinu nýja verður góð aðstaða fyrir æfingar og keppni í blaki og körfuknattleik. Einnig sérstakur salur fyrir fimleika, en þessar þrjár íþróttagreinar njóta mikilla vinsælda í bænum. „Hér er metnaður til að búa vel að þeim og öllum öðrum greinum sem stundaðar verða í íþróttahúsinu, rétt eins og gert er með fótboltann,“ segir bæjarstjórinn.
Nýr gervigrasvöllur í Reykjadal, skammt inn af Hveragerði, er á seinni stigum framkvæmda. Þar verður byrjað að sparka bolta í sumar og keppa á fyrsta flokks keppnisvelli sem hefur þá íslensku sérstöðu að vera upphitaður með gufu, bendir Pétur á.