Vitnið Eina vitnið að morði er lítil stúlka.
Vitnið Eina vitnið að morði er lítil stúlka.
Nú þegar aðeins einn þáttur er eftir af Reykjavík 112 magnast spennan heldur betur, en sjötti og síðasti þáttur dettur inn í Sjónvarp Símans á morgun. Þættirnir eru gerðir eftir bók Yrsu Sigurðardóttur, DNA, og með helstu hlutverk fara Kolbeinn…

Ásdís Ásgeirsdóttir

Nú þegar aðeins einn þáttur er eftir af Reykjavík 112 magnast spennan heldur betur, en sjötti og síðasti þáttur dettur inn í Sjónvarp Símans á morgun. Þættirnir eru gerðir eftir bók Yrsu Sigurðardóttur, DNA, og með helstu hlutverk fara Kolbeinn Arnbjörnsson, Vivian Ólafsdóttir og Þorsteinn Bachmann og standa sig öll með prýði. Leikstjórar Reykjavík 112 eru Reynir Lyngdal, Tinna Hrafnsdóttir og Óskar Þór Axelsson.

Hrottalegt morð er framið í heimahúsi í Reykjavík og eina vitnið er lítil stúlka. Lögreglan fer á stúfana en áður en langt um líður er annað álíka viðbjóðslegt morð framið. Kolbeinn leikur rannsóknarlögreglumanninn Huldar sem reynir hvað hann getur til að fá litlu stúlkuna til að lýsa morðingjanum. Vivian leikur Freyju barnasálfræðing sem fengin er til að hjálpa til við að hrista upp í minninu hjá stúlkunni. Til að flækja málin áttu þau í einnar nætur ástarsambandi nóttina fyrir morðið. (Svona er Ísland lítið.)

Saman reyna þau að finna morðingjann og beinast spjótin í ýmsar áttir. Þrátt fyrir að hafa lesið bókina DNA á sínum tíma hef ég sem betur fer enga hugmynd um hver morðinginn er, en hlakka til að sjá síðasta þáttinn.

Höf.: Ásdís Ásgeirsdóttir