Körfuboltinn Erlendir leikmenn eru fjölmargir í íslensku úrvalsdeildunum og leitað er leiða til að auka spiltíma íslensku leikmannanna.
Körfuboltinn Erlendir leikmenn eru fjölmargir í íslensku úrvalsdeildunum og leitað er leiða til að auka spiltíma íslensku leikmannanna. — Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands samþykkti á fundi sínum á laugardag nýja reglu um fjölda erlendra leikmanna í leikjum á Íslandsmótinu á næsta tímabili. Samþykkt var að að lágmarki einn íslenskur leikmaður yrði inni á vellinum hverju sinni, svokölluð 4+1-regla

Körfubolti

Gunnar Egill Daníelsson

gunnaregill@mbl.is

Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands samþykkti á fundi sínum á laugardag nýja reglu um fjölda erlendra leikmanna í leikjum á Íslandsmótinu á næsta tímabili. Samþykkt var að að lágmarki einn íslenskur leikmaður yrði inni á vellinum hverju sinni, svokölluð 4+1-regla.

Engar takmarkanir voru varðandi leikmenn af Evrópska efnahagssvæðinu, EES, á tímabilinu sem nú er að ljúka en stjórn KKÍ samþykkti að takmarka fjölda þeirra á þann hátt að fjórir erlendir leikmenn mættu vera á leikskýrslu hverju sinni.

Þar með er tryggt að í það minnsta einn íslenskur leikmaður sé innan vallar hverju sinni. Auk þess sem fjórir erlendir leikmenn mega vera á tólf manna leikskýrslu mega þessir fjórir erlendu leikmenn vera inni á vellinum hverju sinni.

Vart hefur orðið við töluvert ósætti innan körfuboltahreyfingarinnar vegna ákvörðunar stjórnar KKÍ. Á ársþingi KKÍ fyrir nokkrum vikum var nefnilega samþykkt þingsályktunartillaga um að stjórn sambandsins skyldi útfæra nýja reglu sem kvæði á um að tveir íslenskir leikmenn yrðu að vera inni á vellinum hverju sinni, svokölluð 3+2-regla.

Meiri spiltími Íslendinga

„4+1 er smá misnefni. Við viljum frekar kalla það 4+8, það er svona kannski réttari nálgun. Af því að 4+1 leggja menn að jöfnu við 3+2 en það er ekki alveg þannig. Því held ég að það sé réttara að kalla þetta 4+8. Það er aðeins villandi að tala um 4+1“ sagði Kristinn Albertsson, formaður KKÍ, í samtali við Morgunblaðið.

„Þegar þetta var 3+2 var hugmyndin alltaf að það væru tveir Íslendingar inni á vellinum. En það fyrirkomulag, sem var mest rætt um, hefði tryggt Íslendingum tvö sæti inni á leikvellinum. En það var ekkert tekið á því að fræðilega hefðirðu mátt vera með tíu útlendinga á skýrslu.

Það myndi mjög líklega leiða til þess að þessi þrjú sæti á leikvellinum væru alltaf fyllt með útlendingum af því að þú værir með fleiri en þrjá á skýrslunni. Ég er ekki að segja að þú værir með tíu en værir kannski með fimm útlendinga, þá væru þessi þrjú pláss líklegri til þess að vera fyllt alltaf eða oftar með útlendingum.

Okkur fannst við tryggja vægi og stuðning við íslenska leikmenn betur með því að hafa þetta 4+8, þ.e.a.s. takmarka fjölda útlendinga sem þú mátt vera með á skýrslu. Það þýðir að það þarf alltaf að vera einn Íslendingur inni á enda bara fjórir útlendingar til taks.

Það segir sig næstum því sjálft að það munu fá lið tefla fram fjórum útlendingum allan tímann, ef litið er þreklega, getulega, villulega og taktískt til leikmanna. Við metum það þannig að það séu meiri líkur en minni að spiltími íslenskra leikmanna muni verða meiri, sem var nú tilgangurinn með þessu öllu saman.

Að styðja við íslenska leikmenn betur en kannski er búið að vera að gera. Þetta er sama konsept en önnur nálgun að sambærilegu markmiði, sem er að auka vægi íslenskra leikmanna. Það er alls ekki verið að reyna að gera það ekki. Það er akkúrat verið að gera það,“ sagði Kristinn.

Var hafnað á þinginu

Tillagan um að að minnsta kosti tveir leikmenn með íslenskt ríkisfang væru inni á vellinum hverju sinni, 3+2-reglan, var samþykkt með miklum meirihluta á ársþinginu. 102 samþykktu hana og 25 höfnuðu henni. Í þeirri tillögu fólst að allt að tíu erlendir leikmenn mættu vera á leikskýrslu hverju sinni.

Tillögu Tindastóls, um að fjórir erlendir leikmenn mættu vera inni á vellinum hverju sinni og einn leikmaður með íslenskt ríkisfang, var hins vegar hafnað. 4+1-reglunni svokölluðu var hafnað með 90 atkvæðum gegn 38 sem samþykktu hana. Í tillögu Tindastóls fólst þá að allt að 11 erlendir leikmenn mættu vera á leikskýrslu hverju sinni.

„Ef við setjum til hliðar spurninguna um hver sé réttur eða góður fjöldi erlendra leikmanna, hvort þeir séu einn, tveir eða tíu, þá blasir þetta við mér eins og flestum að því var hafnað á þinginu að hafa fjóra erlenda leikmenn, 4+1, að stórum meirihluta,“ sagði Svali Björgvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Vals, við Morgunblaðið.

Stíga mjög sérstakt skref

„En það var samþykkt með stórum meirihluta á þinginu að fela stjórn að útfæra þrjá erlenda leikmenn, þ.e.a.s. tvo íslenska leikmenn inni á vellinum á hverjum tíma. Það var það sem þingið samþykkti og þingið er æðsta vald körfuboltahreyfingarinnar.

Samkvæmt lögum sambandsins ber stjórn að framfylgja því sem þingið samþykkir, en gerir það ekki í þessu tilviki. Það er augljóst mál að þetta er ekki það sem þingið samþykkti. Þetta er það sem þingið hafnaði. Þá er alveg sama hvaða skoðun þú hefur á fjölda erlendra leikmanna, þetta er óháð þeirri spurningu.

Það er alveg ljóst að stjórnin er að stíga þarna mjög sérstakt skref sem ég man ekki eftir að hafi verið stigið áður, að hún sé að fara gegn vilja þingsins með þessum hætti. Ég man ekki eftir því í körfuboltanum eða íþróttahreyfingunni,“ sagði Svali.

Var skýrt í ályktuninni

Egill Ástráðsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, tók í sama streng og Svali og þykir sem stjórn KKÍ hafi ákveðið að fara gegn vilja ársþingsins.

„Ég held að það sé erfitt að túlka það með öðrum hætti. Það er mjög skýrt í ályktuninni sem var samþykkt á þinginu að það er verið að kalla eftir 3+2. Ég er sammála því að þetta sé bara 4+1 sem er búið að kynna þó að það sé einhver röksemdafærsla sem eigi að láta það líta öðruvísi út.

Þetta er ekki það sem var verið að kalla eftir. Ég ætla ekki að gerast matsmaður um það en ég get ekki séð hvernig þessi ákvörðun um að fara svona gegn ályktun þingsins sé til þess fallin að auka traust til sambandsins,“ sagði Egill við Morgunblaðið.

Bæði Svali og Egill sögðust hafa orðið varir við ósætti innan hreyfingarinnar vegna ákvörðunar stjórnar KKÍ. Kristinn sagði slíkt ósætti ekki nýtt af nálinni enda heitt málefni sem mikilvægt væri að fá lendingu í til lengri tíma.

 Ítarlegar er rætt við Kristin, Svala og Egil á mbl.is/sport/korfubolti.

Höf.: Gunnar Egill Daníelsson