Ármann er kominn í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í fyrsta sinn í 45 ár eftir sigur á Hamri, 91:85, í oddaleik liðanna í umspili 1. deildarinnar í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Ármann lék síðast í úrvalsdeildinni tímabilið 1980-1981 og varð Íslandsmeistari árið 1976. Þetta eru góðir tímar í Laugardalnum því kvennalið Ármanns komst einnig upp í fyrsta sinn síðan 1960, eða í 65 ár.
Ármann var skrefi á undan fyrir fjórða leikhluta og yfir með átta stigum en Hamarsmenn minnkuðu muninn þegar leið á fjórða leikhluta og fengu tækifæri til að jafna metin. Það gekk þó ekki og setti hinn ungi Frosti Valgarðsson körfu undir lokin sem tryggði Ármanni sigurinn. Ármenningar fylgja ÍA, sem vann 1. deildina, upp í úrvalsdeildina en Haukar og Höttur féllu niður í 1. deildina.