Anna Kristín Jónsdóttir fæddist 13. maí 1965 í Reykjavík. Hún ólst að mestu upp á Seltjarnarnesi og gekk þar í Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla.
„Ég var í mörg sumur í sveit á Möðruvöllum í Hörgárdal og var félagsmaður í KEA í krafti lambs sem var lagt þar inn í mínu nafni eitt haustið.“
Anna Kristín fluttist með fjölskyldunni til Bandaríkjanna 1980 og var tvo vetur í framhaldsskóla í Arlington í Virginíu. „HB-Woodlawn, skólinn þar þótti mjög frjálslyndur og nemendur tóku þátt í nemendafundi sem hafði töluvert að segja um stjórn skólans, skólastjóri og kennarar voru ávarpaðir með fornafni sem íslenskri stelpu þótti reyndar ekki alveg jafn sérstakt og Kananum. En þarna var ekki þessi umgjörð sem bíómyndir draga upp af Highschool í Bandaríkjunum, hvorki fótboltalið né klappstýrur en leiklistarprógramm sem ég tók þátt í.“
Þegar heim var komið fór Anna Kristín í Menntaskólann í Reykjavík. Hún tók þátt í Herranótt alla veturna í skólanum og útskrifaðist sem stúdent árið 1985. Hún segir að það hafi tekið sig svolítinn tíma að ákveða hvert skyldi haldið eftir stúdentspróf, en hún fór í Háskóla Íslands og lauk þar BA-prófi í heimspeki og latínu, auk þess að eiga tvö eldri börn sín meðan hún var í náminu. „Ég var svolítið að hugsa um leiklist, en svo hef ég fengið útrás fyrir að „performera“ í beinni útsendingu.“
Sumarið 1996 var Anna Kristín ráðin í sumarvinnu á fréttastofu Bylgjunnar og Stöðvar 2. „Þá um haustið var ég svo ráðin til Ríkisútvarpsins í Efstaleiti, fyrst í síðdegisútvarp Rásar 2, svo í Morgunútvarpið og fór þaðan á fréttastofu Sjónvarps, sem var þá á Laugaveginum.“
Í byrjun árs 2000 flutti fjölskyldan til Lúxemborgar, mánuði áður en yngsta dóttirin fæddist og Anna Kristín var þar fyrst í fæðingarorlofi. „Ég fór einn vetur í háskólann í Trier í meiri latínu og heimspeki en síðasta árið sem fjölskyldan var í Lúxemborg var ég í meistaranámi í fjölmiðla- og kynjafræði við LSE. Ég fór á milli Lúxemborgar og London og var stórviðskiptavinur hjá Ryanair.“
Anna Kristín lauk meistaranáminu árið 2003 og þegar heim var komið fór hún aftur að vinna hjá Ríkisútvarpinu, þá á fréttastofu útvarpsins sem fréttamaður í innlendum fréttum. „Ég fór svo að vinna í Speglinum og var spurningahöfundur í Gettu betur einn vetur, tók hliðarhopp upp í HÍ á árunum 2005 til 2008 og var verkefnisstjóri í námi í blaða- og fréttamennskunni þar og skrifaði pistla í Lesbók Morgunblaðsins einn vetur.“
En Anna Kristín saknaði útvarpsins og fór aftur í Efstaleitið 2008. „Þá var ég í morgunútvarpi með Kristjáni Sigurjónssyni sem var lengi minn aðalmakker og frábær félagi. Ég hef haldið mig í Útvarpshúsinu síðan, flakkað nokkuð á milli verkefna en hef síðustu ár verið í Speglinum og þar með afbragðs samstarfsmenn.“
Hún var í stjórn Félags fréttamanna og formaður um skeið og segir að það hafi á sínum tíma næstum verið þegnskylda að taka sæti í stjórn þess litla stéttarfélags sem nú er gengið inn í Blaðamannafélagið.
Í kringum fermingar eldri barnanna tveggja, sem eru sitt á hvoru árinu, var fjölskyldan tíðir gestir í Hallgrímskirkju í tvo vetur. „Elskulegur granni minn sjanghæjaði mig í safnaðarstjórn í krafti þess í tvö ár. Nú eru börnin öll fullorðin og messuferðum hefur fækkað.“
Anna Kristín segir áhugamálin hefðbundin, en hún hafi mjög gaman af því að prjóna og vilji sinna sínu fólki. „Ekki hefur dregið úr því eftir að barnabörnin komu til sögunnar, það er einstakt að geta fylgst með þessum litlu manneskjum vaxa og dafna. Dætur mínar hafa dregið mig á námskeið í ýmsu sem tengist handavinnunni, knipli, orkeringu og baldýringu, þetta gera þær aðallega til að sýna fram á að þær eru móðurbetrungar. Lengi höfum við svo farið í stangveiði á norðausturhorni landsins. Þangað förum við með foreldrum mínum, börnum og nú barnabörnum á hverju sumri. Það er fátt betra en að liggja vel búin á árbakkanum, nema kannski að setja í fisk og landa. Ég á líka hlut í æskuheimili móður minnar á Grenivík í félagi við nokkuð marga úr stórfjölskyldunni og þangað er alltaf dásamlegt að koma. Það er alltaf gott veður á Grenivík.“
Fjölskylda
Eiginmaður Önnu Kristínar er Lárus Blöndal, f. 19.11. 1964, sviðsstjóri á Hagstofu Íslands, og þau búa í Reykjavík. Foreldrar hans eru Guðrún Karlsdóttir húsfreyja, f. 1936, d. 2016, og Benedikt Blöndal hæstaréttardómari, f. 1935, d. 1991.
Börn Önnu Kristínar og Lárusar eru 1) Laufey Blöndal, f. 6.2. 1992, leikskólastarfsmaður og málvísindanemi; 2) Benedikt Blöndal, f. 5.10. 1993, hugbúnaðarsérfræðingur; og 3) Guðrún Blöndal, f. 12.2. 2000, húsamálari. Barnabörnin eru tvö: Lárus Blöndal, f. 2023, sonur Benedikts og Hildar Egilsdóttur; og Erna Kristín Kristjánsdóttir Blöndal, f. 2024, dóttir Guðrúnar og Kristjáns Inga Þórðarsonar.
Systkini Önnu Kristínar eru 1) Þorbjörn Jónsson, f. 4.6. 1961, sendifulltrúi; 2) Sigurður Þór Jónsson, f. 25.4. 1963, fiskifræðingur; og 3) Rebekka Jónsdóttir, f. 6.3. 1977, búningahönnuður.
Foreldrar Önnu Kristínar eru hjónin Laufey Þorbjarnardóttir, f. 14.4. 1941, fv. bókavörður á Landsbókasafni, og Jón Sigurðsson, f. 17.4. 1941, fv. bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans, seðlabankastjóri, ráðherra og forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Þau búa á Seltjarnarnesi.