60 ára Þorkell fæddist í Reykjavík og ólst upp í Skuggahverfinu og síðar í Vatnsmýrinni. Hann varð ljósmyndari hjá Morgunblaðinu 1985 og starfaði þar í 21 ár. Núna hefur hann starfað sem ljósmyndari Landspítalans í tólf ár. „Ég vinn í samskiptateymi sem sér um innra og ytra kynningarstarf spítalans,“ segir hann og segir alltaf nóg að gera og starfið fjölbreytt.
„Ég tek líka stundum myndir af sjúklingum, þegar það er talið nauðsynlegt til að skrá sjúkrasöguna, þannig að starfið er tvískipt, annars vegar klínískar myndir og hins vegar myndataka af starfsemi spítalans.“
Þorkell, sem er alltaf kallaður Keli, hefur unnið árum saman fyrir hjálparstofnanir í tengslum við þróunar- og mannúðarstarf víða um heim og sú vinna hafi hafist á Moggaárunum. Hann segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á hjálparstarfi og reynir að komast árlega til Afríku og leggja sitt af mörkum.
„Ég hef alltaf trúað því að við séum ein heild. Við erum bara litlar lífverur á pínulitlum hnetti í alheiminum. Ég lít á það sem okkar sameiginlega verkefni í lífinu að sjá til þess að bæði menn og dýr hafi það sæmilegt.“
Keli segir að hann reyni að lifa sem heilsusamlegustu lífi og borði hollan mat og hreyfi sig. „Ég er ekkert of duglegur í hreyfingunni, en hjóla svolítið.“
Hann segir að þegar komi að áhugamálunum þá séu þau fjölmörg og oft kvikni áhugi á ákveðnum málefnum þegar hann er í ljósmyndatökum, t.d. á fyrirlestrum, og hann fari þá að kynna sér málið betur. „Ég hef áhuga á alveg ótrúlegustu hlutum, þegar eitthvað vekur áhuga minn, og get dottið ofan í það. En í grunninn er ljósmyndun samt aðaláhugamál mitt í lífinu.“
Fjölskylda Eiginkona Þorkels er Heba Soffía Björnsdóttir, f. 17.1. 1966, deildarstjóri hjá Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Þau búa í Kópavogi.