Morten Ohlsen Hansen varnarmaður Vestra var besti leikmaðurinn í sjöttu umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins.
Morten átti mjög góðan leik í vörn Vestfjarðaliðsins þegar það lagði Aftureldingu að velli, 2:0, á laugardaginn og var auk þess virkur í sóknarleiknum því hann átti stóran þátt í báðum mörkunum, krækti fyrst í vítaspyrnu og átti svo stoðsendingu á Arnór Borg Guðjohnsen.
Hann fékk tvö M í einkunn hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína.
Fjórða árið á Íslandi
Morten er 31 árs gamall Dani og uppalinn hjá Sönderjyske þar sem hann lék ungur tvo leiki í dönsku úrvalsdeildinni.
Hann spilaði síðan í sex ár með C-deildarliðinu Sydvest, þá tvö ár með Kolding í B-deildinni þar sem hann skoraði sex mörk í 55 leikjum, en hefur leikið á Íslandi frá árinu 2022.
Þá lék hann með Kórdrengjum í 1. deild, en síðan með Vestra frá 2023 þar sem hann fór með liðinu upp í Bestu deildina og tók þátt í að halda því þar á síðasta tímabili. Morten er lykilmaður í vörn Vestra sem hefur aðeins fengið á sig tvö mörk í fyrstu sex umferðunum og er í óvæntri stöðu í öðru sæti deildarinnar.
Morten er í liði umferðarinnar í annað sinn í ár og félagi hans í Vestravörninni, Eiður Aron Sigurbjörnsson, er valinn í þriðja skipti. Sex leikmenn eru hins vegar valdir í fyrsta skipti á tímabilinu.