Tuttugu og fjögur mörk voru skoruð í fimm leikjum í 16 liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Þróttur, Valur, FH, Tindastóll og HK, sem leikur í 1. deild, eru komin áfram í átta liða úrslitin og fylgja Breiðabliki, Þór/KA og ÍBV, sem leikur í 1. deildinni, þangað.
Þróttur R. vann magnaðan sigur á Víkingi R., 6:3, í Laugardalnum. Þórdís Elva Ágústsdóttir skoraði fyrstu þrjú mörk Þróttar en hin sex mörk leiksins komu öll á 25 mínútuna kafla í seinni hálfleik.
Valur vann þá sigur á Fram eftir framlengingu, 3:2, í Úlfarsárdal. Venjulegum leiktíma lauk með jafntefli, 2:2, en sigurmark Vals skoraði Jordyn Rhodes á 111. mínútu.
Tindastóll skellti þá Stjörnunni í framlengdum leik í Garðabænum, 3:1. Venjulegum leiktíma lauk með jafntefli, 1:1, en í framlengingunni skoruðu María Dögg Jóhannesdóttir og Saga Ísey Þorsteinsdóttir fyrir Tindastól.
FH komst áfram með sannfærandi sigri á Fylki, 4:1. Maya Hansen og Ída Marín Hermannsdóttir skoruðu hvor sína tvennuna fyrir FH.
Loks vann HK Grindavík/Njarðvík, 2:0, í 1. deildarslag í Kópavogi.
jokull@mbl.is