Stjarna Diana Burkot úr Pussy Riot.
Stjarna Diana Burkot úr Pussy Riot.
Hátíð gegn landamærum nefnist viðburður sem samtökin No Borders Iceland standa fyrir í Iðnó 11. júlí. „Á sviðið stígur einvala tónlistarfólk og hljómsveitir – þar á meðal eru poppgoðsögnin Páll Óskar og heimsfrægi rússneski aktívístahópurinn Pussy Riot

Hátíð gegn landamærum nefnist viðburður sem samtökin No Borders Iceland standa fyrir í Iðnó 11. júlí. „Á sviðið stígur einvala tónlistarfólk og hljómsveitir – þar á meðal eru poppgoðsögnin Páll Óskar og heimsfrægi rússneski aktívístahópurinn Pussy Riot. Auk þeirra koma fram Izleifur, Inspector Spacetime, Kusk & Óviti, Gróa, Alexander Jarl, Flesh Machine og Geðbrigði (sigurvegarar Músíktilrauna 2025) og DJ Óli Dóri þeytir skífum. Markmið hátíðarinnar er að skapa vitundarvakningu um réttindabaráttu fólks á flótta og þá erfiðu stöðu sem það býr við, bæði á Íslandi og um allan heim. Fólk á flótta eru manneskjur með rödd, líf og rétt til ferðafrelsis og öryggis,“ segir í viðburðarkynningu. Miðasala hefst í dag, þriðjudag, kl. 10. Miðar fást á tix.is.