Reynir Þór Stefánsson, sem lék sinn fyrsta leik fyrir A-landsliðið í handbolta á sunnudag, var í gær orðaður sterklega við Melsungen í þýska miðlinum Sport Bild. Miðilinn greinir frá að Melsungen hafi lengi fylgst með Reyni og vilji gera við hann…

Reynir Þór Stefánsson, sem lék sinn fyrsta leik fyrir A-landsliðið í handbolta á sunnudag, var í gær orðaður sterklega við Melsungen í þýska miðlinum Sport Bild. Miðilinn greinir frá að Melsungen hafi lengi fylgst með Reyni og vilji gera við hann þriggja ára samning fyrir næsta tímabil.

Handknattleiksþjálfarinn Elías Már Halldórsson hefur verið ráðinn til Ryger í Stafangri í Noregi og tekur hann við karlaliði félagsins. Elías gerði tveggja ára samning við félagið. Ryger endaði í níunda sæti B-deildarinnar á síðustu leiktíð og leikur áfram í næstefstu deild. Elías kemur til Ryger frá Fredrikstad í Noregi en hann þjálfaði kvennalið félagsins frá 2021 og þar til í vor.

Óðinn Freyr Heiðmarsson hefur samið við handknattleiksdeild ÍR og mun leika með liðinu næstu tvö tímabil. Óðinn Freyr, sem er 26 ára línumaður, kemur frá Fjölni, þar sem hann lék undanfarin ár. Fjölnir féll úr úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili á meðan ÍR hélt sæti sínu í deildinni en þau voru bæði nýliðar.

Noah tryggði sér í gær armenska bikarmeistaratitilinn í fótbolta er liðið sigraði Ararat-Armenia í bikarúrslitum, 3:1. Guðmundur Þórarinsson, sem er á sínu fyrsta tímabili með Noah, lék allan leikinn með liðinu, sem varð armenskur meistari á dögunum.

Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við hornamanninn Jakob Inga Stefánsson um að leika með liðinu næstu tvö tímabil. Jakob Ingi er 27 ára vinstri hornamaður og kemur frá Gróttu, sem féll úr úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili.