Jón Breki Jónas fæddist 14. desember 2004. Hann lést 21. apríl 2025.

Útför Jóns Breka fór fram 2. maí 2025.

Það er erfitt að setja í orð hversu sárt það er að kveðja Jón Breka, en það sem er enn erfiðara er að lýsa því hve einstakur hann var. Jón var fallegasta og bjartasta sál sem ég hef kynnst. Hann var ekki eins og aðrir, hann var algjörlega einstakur, karakter sem lýsti upp allar aðstæður sem hann kom í. Það jafnast enginn á við hann.

Hæfileiki Jóns var ekki bara sá að vera góður, heldur að vera ótrúlega góður vinur. Hann var ríkasti maðurinn sem ég þekkti þegar kom að vináttu, og það var alls ekki að ástæðulausu. Hann var alltaf fyrstur til að gleðjast með manni. Fyrstur til að óska mér til hamingju með afmælið, aldrei meira en fimm mínútur gengnar yfir miðnætti án símtals frá Jóni. Hann hrósaði af einlægni og hlustaði eins og það væri í fyrsta sinn, jafnvel þótt ég væri að tala um eitthvað í tíunda skiptið.

Það var alltaf eitthvað sérstakt þegar Jón var nálægur. Ég beið alltaf spennt eftir að hann kæmi í veislur, því ekkert byrjaði almennilega fyrr en hann var mættur. Hann var stjarna. Eins og sólargeisli sem lýsti allt upp í kringum sig. Sama hvort það var bíltúr, sundferð, bröns eða að liggja uppi í sófa, þá var alltaf betra, skemmtilegra og bjartara þegar Jón var með. Hann hafði einstaka hæfileika til að láta fólki líða vel, nærvera hans var engu lík.

Ég er ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að lifa hluta af lífinu mínu með Jóni Breka sem vini. Að hugsa sér líf án hans, án þess að hafa björtustu stjörnuna sér við hlið, er ólýsanlega erfitt. En ég geymi minninguna um hann í hjartanu með þakklæti, hlýju og óendanlegri ást.

Patricia Dúa Thompson Landmark.

Elsku fallegi Jón Breki okkar.

Það er erfitt að finna orðin þegar reynt er að lýsa manneskju sem hafði svo djúp áhrif á alla í kringum sig, þú varst ljós okkar og gleðigjafi. Í nærveru þinni sáum við allt í kringum okkur öðrum augum, í orðsins fyllstu merkingu varst þú engill í mannsmynd.

Allir sem fengu að kynnast þér elskuðu þig samstundis, þú gafst frá þér orku sem enginn gat lýst.

Það voru hrein forréttindi að fá að eiga þig að sem besta vin, öllum litlu hittingunum sem við áttum breyttir þú í fögnuð lífsins. Þú sættir þig aldrei við lágmark, hvort sem það var afmæli hjá vinkonu eða við að fara saman út á lífið, þú gerðir það besta úr öllum aðstæðum og fékkst alla í kringum þig til þess að taka þátt.

Það skein af þér hamingja alla daga allan ársins hring, þú smitaðir af þér gleði og húmor eins og enginn annar. Það er stór hola í hjörtum allra sem þekktu þig sem enginn getur uppfyllt, þú varst og verður alltaf fallegasta sál sem við fáum að kynnast. Þú varst manneskjan sem gafst vinkonu þinni fötin þín því hún dáðist að þeim. Þú varst manneskjan sem keypti miða á tónleika langt fram í tímann því þú hafðir áhyggjur af því að vinkona þín, sem ætlaði á tónleikana, myndi annars enda ein með miða. Þú varst manneskjan sem vildi kaupa fyrirvaralaust miða til útlanda svo að vinkona þín yrði ekki ein á afmælinu sínu. Þú varst manneskjan sem hringdi daglega til þess eins að hringja. Þú varst manneskjan sem setti þá sem þú elskaðir í forgang, alltaf. Þú varst og verður alltaf besta og fallegasta manneskja sem heimurinn mun nokkurn tímann kynnast.

Stundirnar okkar saman munu ávallt lifa í minningum okkar, ein af þeim hlýjustu er þegar við héldum árshátíð vinahópsins okkar. Þú dróst Rebekku með þér í Ikea að borða og plana því þú varst staðráðinn í því að við ættum að segja Ísalind að panta sér flug heim til að halda árshátíð. En Elín, Tobba og Þóra máttu ekki vita því þig langaði að koma þeim á óvart.

Næstu vikur fóru í að skipuleggja þennan hátíðardag. Þegar þú skipuleggur eitthvað, þá ferðu alla leið. Ef við hefðum ekki verið þarna til þess að jafna þetta aðeins út hefði þetta verið í líkindum við risaþjóðhátíðarfögnuð í Bandaríkjunum. Þú vildir panta eftirhermu Elvis, töframann og trúbador og fá þá alla inn í litlu íbúðina með okkur sex sem áhorfendur. Þú vildir alltaf gera allt glæsilegt fyrir vini þína. Þegar dagurinn rann loksins upp komst þú okkur á óvart með bolum í stíl fyrir okkur allar sem þú borgaðir fyrir sjálfur, bara af því þig langaði til þess. Þessi ógleymanlegi dagur ásamt ótal mörgum minningum sem þú skapaðir með okkur mun hlýja hjörtum okkar það sem eftir er, allt þökk sé þér.

Takk fyrir allt, við munum alltaf elska þig.

Elín, Ísalind, Rebekka,
Þorgerður (Tobba) og Þór.