Hringur Hafsteinsson er gestur á Hönnunarsafni Íslands í dag kl. 12.15. Hann er listrænn stjórnandi og einn af stofnendum Gagarín „sem sérhæfir sig í skapandi lausnum til að miðla fróðleik af ólíkum toga, til dæmis fyrir söfn, áfangastaði og sýningar. Hringur mun fjalla um hvernig Gagarín nálgast ólík verkefni – allt frá fyrstu hugmynd að fullmótuðu verki – og deila aðferðum sem hópurinn notar í hönnunarferlinu,“ segir í tilkynningu. Aðgangur er ókeypis.
Á alþjóðlega safnadaginn, sunnudaginn 18. maí, klukkan 13 verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili. „Til gamans ætlum við að skoða nokkur dansdæmi frá tímabilum sem tengjast hlutum á sýningunni. Sigríður Soffía Níelsdóttir dansari og Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður safnsins sjá um leiðsögnina.“