Fyrirliði Danski leikstjórnandinn Adama Darboe átti stóran þátt í sigri Ármanns gegn Hamri í oddaleik liðanna.
Fyrirliði Danski leikstjórnandinn Adama Darboe átti stóran þátt í sigri Ármanns gegn Hamri í oddaleik liðanna. — Morgunblaðið/Eggert
Danski körfuboltamaðurinn Adama Darboe fór fyrir Ármenningum þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í 45 ár með sigri gegn Hamri í oddaleik liðanna í umspili 1. deildarinnar í Laugardalshöllinni á mánudaginn

Körfubolti

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Danski körfuboltamaðurinn Adama Darboe fór fyrir Ármenningum þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í 45 ár með sigri gegn Hamri í oddaleik liðanna í umspili 1. deildarinnar í Laugardalshöllinni á mánudaginn.

Darboe, sem er 39 ára gamall leikstjórnandi, gekk til liðs við Ármann síðasta sumar en hann hefur einnig leikið með KR og Stjörnunni hér á landi.

Danski leikstjórnandinn skoraði 16 stig í oddaleiknum gegn Hamri, ásamt því að taka sjö fráköst og gefa átta stoðsendingar en hann er útnefndur maður leiksins í leikslok.

„Maður hefur upplifað marga stóra sigra á ferlinum og þessi var á meðal þeirra sætustu,“ sagði Darboe í samtali við Morgunblaðið en hann lék bæði í heimalandi sínu Danmörku og í Svíþjóð áður en hann kom til Íslands árið 2021 þar sem hann hefur leikið síðan.

„Þetta var langt tímabil og gengið hefur verið upp og ofan. Við vorum hóflega bjartsýnir fyrir leikinn en að spila þennan leik á heimavelli hjálpaði okkur mikið. Við unnum fyrir heimavallarréttinum í einvíginu og það sýndi sig á endanum hversu miklu máli hann getur skipt í svona einvígi.

Þetta var týpískur oddaleikur fannst mér, þar sem allt var undir. Hjartað ætlaði út úr búningnum á tímabili, hjá okkur öllum. Ég hef verið atvinnumaður í íþróttinni í mörg ár og það eru þessir leikir sem maður lifir fyrir. Að vinna þessa stærstu leiki gefur manni eitthvað sem þú færð hvergi annars staðar og tilfinningin í leikslok var ofboðslega góð. Ég er virkilega stoltur af bæði liðinu og félaginu í heild sinni,“ sagði Darbo.

Vinna óeigingjarnt starf

Alls mættu 1.337 áhrofendur í Laugardalshöllina á mánudaginn og fundu leikmenn beggja liða vel fyrir stuðningnum.

„Ég vil nota tækifærið og hrósa stuðningsmönnum Hamars sem fjölmenntu á alla leiki einvígisins. Þessi stuðningur sem við fengum skipti okkur einfaldlega öllu máli. Það var næstum því fullt, í stærsta íþróttahúsi landsins, sem segir manni ýmislegt. Þetta sýnir líka hversu miklu máli þetta skiptir fyrir félagið í heild sinni.

Það er fólk sem starfar í kringum Ármann sem eyðir líklegast meiri tíma en við inni í íþróttahúsinu. Það er endalaust af sjálfboðaliðum líka sem vinna mjög óeigingjarnt starf. Allt þetta fólk, stjórnarmeðlimir og þeir sem starfa á bak við tjöldin, eiga jafn mikið í þessum árangri og við. Það fór mikil orka hjá öllum í þetta tímabil og ég hefði ekki getað hugsað mér betri endi.“

Sérstakur staður í Reykjavík

Eins og áður sagði gekk Darboe til liðs við Ármenninga síðasta sumar en hann hefur starfað sem dönskukennari í Laugalækjarskóla undanfarin tvö ár, ásamt því að þjálfa 9.-10. flokk kvenna hjá Ármanni, og hann er því farinn að þekkja vel til í hverfinu.

„Ég er mikið í kringum sömu krakkana hérna í hverfinu á hverjum einasta degi. Ég er að kenna þeim í Laugalækjarskóla, ég þjálfa einhver þeirra og svo sé ég þau annaðhvort í skólanum eða í íþróttahúsinu nánast á hverjum einasta degi. Þetta hverfi er mjög sérstakur staður í Reykjavík og með samheldnina að vopni tókst okkur að koma liðinu upp um deild sem var alls ekki auðvelt verkefni.

Í upphafi tímabilsins fórum við inn í alla leiki til þess að vinna þá að sjálfsögðu. Þegar líða fór á leiktíðina áttuðum við okkur svo á því að við værum með eitt af betri liðum deildarinnar. Með því fylgdi ákveðið sjálfstraust og þegar þú ert alltaf nær og nær því að ná markmiðum þínum, fylgir því aukaorka. Ég er stoltur af því sem við höfum afrekað saman og ég elska þetta íþróttafélag.“

Fékk fimmur í skólanum

Hvernig leið Darboe þegar hann mætti í vinnuna í morgun?

„Ég verð að viðurkenna það að ég var frekar þreyttur þegar ég mætti. Við fögnuðum þessum árangri í gær en það er ótrúlega skrítið að þegar svona stórt markmið næst, þá verður maður hálfdasaður einhvern veginn. Auðvitað fylgir þessu ofboðslega mikil gleði en á sama tíma fylgir þessu líka mikill léttir enda erum við að tala um einn leik þar sem allt tímabilið, heilir níu mánuðir, er undir.

Það voru ansi margir sem vildu gefa mér fimmu í skólanum í morgun og það er einn af þeim hlutum sem ég elska við lífið hérna. Ég er ekki bara atvinnumaður í körfubolta, ég er að vinna og þjálfa. Aukatíminn fer í körfubolta sem gerir þetta dýrmætara en oft áður. Það er óskandi að þessi árangur okkar haldi áfram að hjálpa til við að stækka körfuboltadeildina innan félagsins og að áhuginn haldi áfram að aukast.“

Stórt stökk í úrvalsdeildina

Darboe skrifaði undir eins árs samning við Ármenninga en reiknar hann með því að taka slaginn með liðinu í efstu deild?

„Ég er ótrúlega spenntur auðvitað en þetta er stórt stökk, að fara úr næstefstu deild í þá efstu. Núna er það klúbbsins að vega það og meta hvernig við tæklum næsta tímabil. Þú þarft aukið fjármagn þegar þú ert kominn í deild þeirra bestu og það er stjórnarinnar að ákveða hvað og hvernig þau vilja gera hlutina.

Ég elska körfubolta og körfubolti er það skemmtilegasta sem ég geri. Það er erfitt að finna stað þar sem þú nýtur þín jafnvel og ég hef gert í herbúðum Ármanns. Ég vona innilega að ég verði áfram með liðinu á næstu leiktíð enda ætla ég mér að spila körfubolta eins lengi og ég mögulega get, og líkaminn leyfir,“ bætti Adamo Darboe við í samtali við mbl.is.

Höf.: Bjarni Helgason