Norður
♠ 54
♥ 952
♦ ÁK64
♣ ÁD82
Vestur
♠ 872
♥ G3
♦ D7
♣ KG7653
Austur
♠ ÁKD93
♥ –
♦ G10932
♣ 1094
Suður
♠ G106
♥ ÁKD108764
♦ 85
♣ –
Suður spilar 5♣.
Spilið að ofan er ráðgáta. Hvernig stóð á því að Zia Mahmood og Michael Kamil spiluðu 5♣ í NS í keppni um sæti í B-liði Bandaríkjanna?
Keppnin var sýnd á vefnum Lovebridge og sagnir gengu þannig að Zia opnaði á 1♦ í norður, austur sagði 1♠, Kamil í suður 2♥, vestur sagði 2♠, Zia 3♥ og austur stökk í 4♠. Nú sagði Kamil 5♣ og þeirri sögn fylgdu þrjú pöss! Kamil fékk fjóra slagi og AV 350. Við hitt borðið spiluðu NS 4♥ og fengu 11 slagi, 450.
Af hverju passaði Zia 5♣ sem augljóslega var fyrirstöðusögn því hjarta var samþykktur tromplitur? Ekki er minnst á þetta spil í mótsblaðinu og undirritaður hefur hvergi séð fjallað um það á bridsvefjum. Ein skýring kann að vera, að spjaldtölvur voru notaðar til að slá inn sagnir og hugsanlega hefur Zia þrýst á rangan hnapp. En það eru aðeins getgátur.