Logi Tómasson, landsliðsmaður í knattspyrnu, heldur til Tyrklands í sumar eftir að norska félagið Strömsgodset samþykkti 126,4 milljóna króna tilboð í hann. Nettavisen greinir frá því að Logi muni gangast undir læknisskoðun hjá nýju félagi sínu á…
Logi Tómasson, landsliðsmaður í knattspyrnu, heldur til Tyrklands í sumar eftir að norska félagið Strömsgodset samþykkti 126,4 milljóna króna tilboð í hann. Nettavisen greinir frá því að Logi muni gangast undir læknisskoðun hjá nýju félagi sínu á næstu vikum en norski miðillinn TV2 greinir frá því að félagið sem um ræðir sé Samsunspor. Félagið er í fjórða sæti efstu deildar Tyrklands á eftir stórliðum Besiktas, Fenerbahce og Galatasaray.