Svikavefir Robert De Niro leikur í Zero Day.
Svikavefir Robert De Niro leikur í Zero Day.
Leikarinn Robert De Niro hefur verið í uppáhaldi alveg frá því ég sá hann í kvikmyndunum Guðföðurnum eftir Francis Ford Coppola og Mean Streets eftir Martin Scorsese, sem hann átti eftir að vinna mikið með

Karl Blöndal

Leikarinn Robert De Niro hefur verið í uppáhaldi alveg frá því ég sá hann í kvikmyndunum Guðföðurnum eftir Francis Ford Coppola og Mean Streets eftir Martin Scorsese, sem hann átti eftir að vinna mikið með.

De Niro er orðinn 81 árs, en hann lætur engan bilbug á sér finna. Fyrir skömmu datt inn á efnisveituna Netflix þáttaröðin Zero Day. Hryðjuverk er framið í Bandaríkjunum og De Niro leikur fyrrverandi forseta, sem lætur narra sig til að rannsaka málið. Samsæriskenningarnar láta ekki á sér standa og eins og vera ber er ekki nokkur leið að sjá í gegnum þann vef blekkinga, sem spunninn er til að rugla áhorfendur í ríminu.

Þá er forsetinn fyrrverandi ráðgáta. Stundum virðist hann vera fullkomlega með á nótunum, röggsamur og snaggaralegur. Þess á milli virkar hann ráðvilltur og áhorfandinn fer að velta fyrir sér hvort hann sé farinn að tapa glórunni og sé jafnvel orðinn ímyndunarveikur.

Þar kemur hljómsveitin Sex Pistols til sögunnar. Lag þeirra Who Killed Bambi hljómar í tíma og ótíma og gamli forsetinn ráfar um og rótar í pullum og púðum til að finna út hvaðan söngurinn ómar, en hann virðist aðeins glymja í kollinum á honum sjálfum.

Höf.: Karl Blöndal