Dagbjartur Sigurbrandsson, kylfingur GR og Missouri-háskólans, tryggði sér í fyrrinótt sæti á lokastigi úrtökumótsins fyrir opna bandaríska meistaramótið, US Open, eftir að hafa náð góðum árangri í undankeppni
Dagbjartur Sigurbrandsson, kylfingur GR og Missouri-háskólans, tryggði sér í fyrrinótt sæti á lokastigi úrtökumótsins fyrir opna bandaríska meistaramótið, US Open, eftir að hafa náð góðum árangri í undankeppni. Gunnlaugur Árni Sveinsson, kylfingur GKG og LSU-háskólans, mun einnig taka þátt í lokaúrtökumótinu þar sem hann er á meðal 50 efstu áhugakylfinga heims en lokaúrtökumótið fer fram annaðhvort 19. maí eða 2. júní.