Stórveldi Viktor Gísli Hallgrímsson er búinn að semja við Barcelona.
Stórveldi Viktor Gísli Hallgrímsson er búinn að semja við Barcelona. — Morgunblaðið/Eyþór
Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, hefur samið við spænska stórveldið Barcelona um að leika með því næstu tvö tímabil. Viktor Gísli kemur frá pólska félaginu Wisla Plock þar sem hann lék eitt tímabil

Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, hefur samið við spænska stórveldið Barcelona um að leika með því næstu tvö tímabil. Viktor Gísli kemur frá pólska félaginu Wisla Plock þar sem hann lék eitt tímabil. Landsliðsmarkvörðurinn er 24 ára gamall og hefur einnig leikið með Nantes í Frakklandi og GOG í Danmörku sem atvinnumaður. Hjá Barcelona mun Viktor Gísli mynda markvarðateymi með Dananum Emil Nielsen.