Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta í gær með sigri gegn Njarðvík í oddaleik á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Sigurinn hefði ekki getað verið tæpari, 92:91, eftir framlengingu en einvígi liðanna í úrslitum Íslandsmótsins hefur verið frábær skemmtun, og frábær auglýsing fyrir íslenskan körfubolta.
Í úrslitunum karlamegin eigast við Tindastóll og Stjarnan þar sem staðan er 1:1 en báðir leikirnir hafa verið háspennuleikir þótt Stjarnan hafi vissulega unnið sannfærandi sigur í öðrum leik liðanna í Garðabænum um daginn.
Það er engu um það logið þegar talað er um úrslitakeppnina í körfuboltanum sem einn af hápunktum ársins enda fátt skemmtilegra.
Í vikunni hefst úrslitaeinvígið karlamegin í handboltanum þar sem Valur og Fram mætast. Í næstu viku hefst svo úrslitaeinvígið kvennamegin þar sem Valur og Haukar mætast. Áður en að því kemur getur Valur tryggt sér Evrópubikar kvenna, fyrst íslenskra kvennaliða, með sigri gegn Porrino frá Spáni á Hlíðarenda á laugardaginn eftir jafntefli liðanna í fyrri leiknum.
Bestu deildir karla og kvenna í fótbolta eru svo í fullum gangi þar sem þrjú lið deila toppsætinu karlamegin og þrjú lið deila toppsætinu kvennamegin líka.
Til að toppa þennan frábæra árstíma er spáð sól og blíðu út vikuna og allt upp í 20 stiga hita á landinu, víðast hvar.
Það er því óhætt að segja að lífið leiki við landann þessa dagana, allavega þá sem hafa áhuga á íþróttum.
Ég hef sagt það áður og segi það enn; ég vorkenni þeim svo sannarlega sem hafa ekki áhuga á íþróttum.