Íslandsmeistarar Þóra Kristín Jónsdóttir og Lovísa Björt Henningsdóttir lyfta Íslandsmeistarabikarnum á heimavelli sínum í gærkvöldi.
Íslandsmeistarar Þóra Kristín Jónsdóttir og Lovísa Björt Henningsdóttir lyfta Íslandsmeistarabikarnum á heimavelli sínum í gærkvöldi. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Haukar eru Íslandsmeistarar kvenna í körfubolta í fimmta skipti og í fyrsta skipti frá árinu 2018 eftir ótrúlegan sigur á Njarðvík, 92:91, í framlengdum oddaleik liðanna í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði í gærkvöldi

Körfubolti

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Haukar eru Íslandsmeistarar kvenna í körfubolta í fimmta skipti og í fyrsta skipti frá árinu 2018 eftir ótrúlegan sigur á Njarðvík, 92:91, í framlengdum oddaleik liðanna í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði í gærkvöldi.

Hin bandaríska Diamond Battles skoraði sigurkörfu Hauka á vítalínunni þegar 22 sekúndur voru til leiksloka er hún hitti úr öðru af tveimur vítaskotum sem hún náði í.

Njarðvík fékk nokkur tækifæri til að komast yfir í kjölfarið en mistókst að koma boltanum ofan í körfuna. Brittany Dinkins hitti m.a. ekki úr galopnu sniðskoti undir körfunni.

Njarðvík þurfti að elta

Haukar voru skrefinu á undan nær allan leikinn en tókst illa að hrista Njarðvík alveg af sér, þrátt fyrir að ná nokkrum sinnum þokkalegu forskoti.

Alltaf svaraði Njarðvík. Haukar voru með átta stiga forskot þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma, 76:68, og sex stiga forskot þegar 30 sekúndur voru eftir.

Njarðvík neitaði sem fyrr að gefast upp og jafnaði með tveimur þriggja stiga körfum. Hulda María Agnarsdóttir gerði þá seinni og sá til þess að úrslitin réðust í framlengingu í sjálfum oddaleiknum í úrslitaeinvíginu.

Langt og dramatískt

Eftir langa og dramatíska framlengingu, þar sem dómararnir voru m.a. í meira en fimm mínútur að ákveða hvort liðið ætti innkast í blálokin, höfðu Haukar að lokum betur, þar sem Njarðvík nýtti ekki sín tækifæri til að skora sigurkörfuna.

Þóra Kristín Jónsdóttir var stigahæst hjá Haukum með 25 stig. Hún skoraði afar mikilvægar þriggja stiga körfur á lokakaflanum og átti stóran þátt í sigri heimakvenna. Diamond Battles bætti við 20 stigum.

Tinna Guðrún Alexandersdóttir skoraði 12 stig og tók átta fráköst. Tinna hitti aðeins úr tveimur af sjö þriggja stiga tilraunum sínum og var búin að klikka úr fyrstu fimm þegar hún skoraði úr tveimur afar mikilvægum undir lokin. Tinna var mögnuð á tímabilinu, þótt hún hafi ekki átt sinn besta leik í oddaleiknum.

Hjá Njarðvík átti áðurnefnd Brittany Dinkins stórleik og skoraði 28 stig og tók 15 fráköst. Hún var besti leikmaður liðsins, þrátt fyrir að hún hafi klikkað í kjörstöðu þegar mest var undir. Henni verður ekki kennt um tapið þrátt fyrir það.

Paulina Hersler skoraði 18 stig og tók 14 fráköst fyrir gestina og Krista Gló Magnúsdóttir gerði 15 stig.

Einvígið í heild var glæsileg auglýsing fyrir körfubolta í kvennaflokki á Íslandi. Það er ekki hægt að biðja um meira en að úrslitin í oddaleiknum ráðist í framlengingu og aðeins eitt stig skilji að.

Haukar komust í 2:0 með tveimur nokkuð öruggum sigrum í fyrstu tveimur leikjunum. Njarðvík neitaði að gefast upp og svaraði með einum sannfærandi sigri og öðrum í jöfnum og skemmtilegum leik.

Var því allt undir í oddaleik þessara liða, rétt eins og árið 2022 þegar Njarðvík vann í sama húsi. Nú var hins vegar komið að Haukunum, sem eru vel að sigrinum komnir.

Besta liðið í allan vetur

Haukar voru með nokkra yfirburði í deildinni í vetur, unnu 19 leiki og töpuðu aðeins þremur í 22 umferðum. Fyrir vikið unnu Haukar deildina með sex stigum. Haukar skoruðu mest allra liða í deildinni og aðeins Valur fékk færri stig á sig. Voru Haukar því gríðarlega sterkir á báðum endum vallarins.

Það sem gerir afrek Hauka enn glæsilegra er sú staðreynd að liðið lék án fyrirliða síns nær allt tímabilið en Lovísa Björt Henningsdóttir sleit krossband í hné í leik gegn Stjörnunni strax í 3. umferð. Lovísa er landsliðskona og var um mikið áfall fyrir Haukaliðið að ræða, áfall sem liðið vann gríðarlega vel úr.

Þá á þjálfarinn Emil Barja mikið hrós skilið fyrir að verða Íslandsmeistari á sínu fyrsta heila tímabili sem aðalþjálfari. Emil lék sjálfur í ein 15 tímabil með Haukum og það skemmir svo sannarlega ekki þegar þjálfarinn er uppalinn og með mikla ástríðu fyrir félaginu.

Tveir oddaleikir

Haukarnir sýndu mikinn styrk í úrslitakeppninni. Liðið lenti í miklum vandræðum gegn Grindavík í átta liða úrslitum, þar sem Grindavík vann tvo fyrstu leikina. Haukar svöruðu með þremur sigrum í röð og unnu því tvo oddaleiki á leið sinni að titlinum. Þess á milli vann Haukaliðið afar sannfærandi sigur á Val í undanúrslitum.

Margir leikmenn Hauka eru á besta aldri og Hafnarfjarðarfélagið ætlar ekki að hætta núna. Liðið vann fyrstu þrjá Íslandsmeistaratitlana á fjórum árum og annað eins gæti gerst nú.

Höf.: Jóhann Ingi Hafþórsson