2023 Steinar og Vilborg eru samhent hjón og bera aldurinn einstaklega vel.
2023 Steinar og Vilborg eru samhent hjón og bera aldurinn einstaklega vel.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Steinar Þór Jónasson fæddist í Hrísey 14. maí 1935 og ólst þar upp til sjö ára aldurs. „Árið 1941 flutti fjölskyldan til Akureyrar og svo til Siglufjarðar, en ég varð eftir hjá afa og ömmu í Hrísey þar til þau voru búin að koma sér fyrir á…

Steinar Þór Jónasson fæddist í Hrísey 14. maí 1935 og ólst þar upp til sjö ára aldurs. „Árið 1941 flutti fjölskyldan til Akureyrar og svo til Siglufjarðar, en ég varð eftir hjá afa og ömmu í Hrísey þar til þau voru búin að koma sér fyrir á Siglufirði.“ Steinar segir að það hafi verið viðbrigði fyrir ungan dreng að koma til Siglufjarðar, sem var miklu fjölmennara samfélag en í Hrísey. Hann gekk í Barnaskólann á Siglufirði og þegar hann var níu ára varð hann sendill hjá Gesti Fanndal kaupmanni.

Sautján ára fór hann á togarann Hafliða og síðan á Skjöld frá Siglufirði. „Ég varð aldrei sjóveikur, en við lentum á Skildi í hremmingum eitt sinn út frá Grímsey. Það vildi ekki betur til en að við strönduðum og báturinn var að sökkva. Það var maður á bátnum, Sigurður Gíslason, sem ég kalla ofurmennið, sem henti sér út í sjóinn og lét ölduna bera sig að klettunum og náði með einhverjum hætti að komast þar upp og ná í björgunarhring og þannig var hægt að bjarga áhöfninni,“ segir Steinar og segir að þetta hafi verið glæfralegt en ótrúlegt þrekvirki hjá Sigurði.

Árið 1955 fór Steinar út til Þýskalands, en hann hafði þá kynnst þýskri konu á Íslandi. „Þetta var það stuttu eftir stríðið að það var ennþá allt í rúst í landinu og til þess að ég fengi atvinnuleyfi voru reglurnar þannig að maður varð að vinna þar sem bráðvantaði fólk í vinnu. Ég fór að vinna í kolanámu, sem var mjög erfitt starf,“ segir Steinar, en eftir þrjú ár í námunum gat hann farið að vinna annars staðar og lærði matreiðslu á Hotel Klein.

Alls var Steinar í sjö ár í Þýskalandi en þá var kominn tími til að fara heim. Eftir að hitta óvænt Íslendinga sem voru á skipi frá Eimskip í Rotterdam var hann fenginn til að fara í túr með þeim. Þannig hófst ferill hans sem bryti, en í þessum túr fór hann til Englands, Antwerpen og síðan aftur til Rotterdam. Síðan var ferðinni heitið heim.

„Sama dag og ég kom til Íslands var kallað á mig með nafni á höfninni og þá er þar brytinn á Drangajökli, sem segist hafa heyrt að ég sé laus og vinnufús, sem ég játaði.“ Það varð úr og Steinar vann í nokkur ár á Drangajökli. Síðar fór hann að vinna á Loftleiðum, og var um tíma hjá Búrfellsvirkjun.

Á þessum tíma var Steinar búinn að kvænast Vilborgu og þau réðust í það að reka Hótel Höfn á Siglufirði og einnig Hótel Hvanneyri, en Sparisjóður Siglufjarðar átti það hótel og Steinar leigði það af þeim. „Svo keyptum við saumastofu og settum hana upp á Siglufirði og rákum hana í nokkur ár. Svo vann ég líka á flugvellinum á Siglufirði og var þar flugvallarstjóri í sjö ár.“

Eftir þrettán ár á Siglufirði flutti fjölskyldan í Mosfellsbæ og Steinar fór að vinna hjá Álafossi sem sölumaður og síðar verslunarstjóri í Álafossbúðinni. „Þetta var ekkert einfalt mál. Við seldum eina milljón trefla til Moskvu í Rússlandi og þar varð maður að tala annaðhvort þýsku eða ensku. Tengiliður okkar í Moskvu hét Navrova, sem er víst skyld núverandi utanríkisráðherra Rússa, en hún sá um innkaup á allri ullarvöru fyrir landið.“

Í Rússlandsferðunum var Steinar mikið með Ernst Hemingsen og Guðjóni heitum Hjartarsyni að selja ullarvörurnar. „Í eitt skiptið sem við vorum að semja við Rússana ætluðum við að fara að borða, en þá voru allir staðir fullir, nema einn, og við settumst þar við borð. Þjónninn kemur með vín á borðið, og þegar við hváum, þar sem við höfuðum ekkert pantað, segir hann að vínið fylgi. Svo kom maturinn, og aldrei pöntuðum við neitt. Það kom síðan í ljós að það var fundur hjá Kommúnistaflokknum [KFPR] sem hafði pantað allan staðinn fyrir mat. Við fengum því að borða frítt í boði rússneska kommúnistaflokksins,“ segir Steinar og hlær að minningunni.

Þegar aðrir hætta að vinna ákvað Steinar að ráða sig á frystitogara, þá 69 ára gamall. „Það voru góðar tekjur í boði og ég við góða heilsu. Við veiddum mikið karfa og annan fisk nálægt Azoreyjum í miðju Atlantshafinu og allur aflinn var unninn um borð og frystur.“

Steinar hefur talsvert komið að félagsmálum, og hann var frumkvöðull að stofnun Kiwanisklúbbsins Skjaldar á Siglufirði og í Mosfellsbænum gekk hann í Kiwanisklúbbinn Geysi. „Ég verð níræður 14. maí, en ég ætla að halda upp á það laugardaginn 17. maí.“

Fjölskylda

Eiginkona Steinars er Elísabet Vilborg Jónsdóttir, f. 13.9. 1940. Foreldrar hennar eru Jón Óskar Guðmundsson, f. 30.3. 1912, d. 17.3. 2009; bóndi og síðar verkamaður í Rvk., og Sigurbjörg Ingvarsdóttir, f. 19.1. 1910, d. 28.11. 2009, húsfreyja og kjólameistari og klæðskeri í Reykjavík.

Börn Steinars og Vilborgar eru: 1) Steinunn Júlía, f. 1.6. 1964, gift Georg Magnússyni, f. 1955. Börn Steinunnar með fyrri eiginmanni, Gísla Jónssyni, f. 1961, eru Berglind Ósk, f. 17.6. 1986; Trausti Jón Þór, f. 5.10. 1988; og Elías Bergþór, f. 3.8. 1990. 2) Jón Óskar, f. 21.4. 1967, var kvæntur Bergþóru Hlíf Guðmundsdóttur, f. 1975, og þau eiga synina Kormák Helga, f. 1999, og Kristófer Inga, f. 2003. 3) Gyða Sigurbjörg, f. 15.11. 1973, var í sambúð með Bergþóri Helga Bergþórssyni, f. 1973. Þau eiga börnin Bergstein, f. 1995; Vilborgu Helgu, f. 2000; og Elísabetu Jenný, f. 2001. 4) Daði Þór, f. 19.6. 1976. Áður átti Vilborg frá fyrra hjónabandi með Þorsteini Ragnarssyni, f. 1939, dæturnar Ragnheiði Jenný, f. 12.10. 1958, sem á Elísabetu Vilborgu, f. 1980; og Dennis Thor, f. 1986 með Dennis Evans, f. 1955, d. 2007, og barnabörn eru fimm; og Kristínu Helgu, f. 22.2. 1963, sem á börnin Elínu Dögg, f. 1983; og Steinar Þór, f. 1988 með Arnari Stefánssyni, f. 1962, og barnabörnin eru þrjú.

Systkini Steinars eru: Ágústa Margrét, f. 22.8. 1939; Gunnlaugur, f. 5.11. 1948; Sólveig, f. 30.4. 1953; og Bryndís Sigurbjörg, f. 4.10. 1954.

Foreldrar Steinars eru hjónin Jónas Kristinn Tryggvason, f. 28.8. 1911, d. 10.6. 1994, sjómaður og húsvörður í Hrísey og á Siglufirði, og Helga Kristín Baldvinsdóttir, húsfreyja í Hrísey og á Siglufirði.