50 ára Svavar Þór fæddist í klaustrinu í Stykkishólmi 14. maí 1975, en ólst upp á Ísafirði. Hann stundaði mikið íþróttir fyrir vestan og var bæði í körfubolta og sundi. Eftir grunnskólann á Ísafirði ákvað hann að fara í víking og fór í Reykholt í Borgarfirði

50 ára Svavar Þór fæddist í klaustrinu í Stykkishólmi 14. maí 1975, en ólst upp á Ísafirði. Hann stundaði mikið íþróttir fyrir vestan og var bæði í körfubolta og sundi. Eftir grunnskólann á Ísafirði ákvað hann að fara í víking og fór í Reykholt í Borgarfirði. „Þar ætlaði ég að fara í íþróttakennarann, en endaði svo með því að fara í kokkinn.“

Áður en náminu lauk brast á langt kennaraverkfall og Svavar Þór flosnaði upp úr skólanum og fór vestur að vinna. Hann var næstu fimm árin á Ísafirði og var að elda í Sjallanum, á Krúsinni og Pizza 67. Síðan fór hann suður og eldaði á Astró og fleiri veitingastöðum í bænum. En þá var kominn tími til að flytja sig um set.

„Ég á dóttur í Rúmeníu og ég fór út til að vera meira með henni. Ég bjó í litlum bæ, sem heitir Costesti, og að koma til Rúmeníu var eins og að koma fjörutíu ár aftur í tímann. Maður bjó í hálfgerðri sveit, kamarinn var úti í garði og var bara hola með skúr yfir og allt timbur var flutt á milli svæða á hestvögnum, en allt var kynt með timbri. En þetta var góður tími.“

Svavar var í eitt og hálft ár í Rúmenínu en flutti þá til Bretlands, nánar tiltekið til Leeds. Þar tók við klúbbatímabilið, en þar var hann í eitt og hálft ár og rak þrjá skemmtistaði áður en heimþráin tók yfir. Hann fór að sjálfsögðu að styðja Leeds í fótboltanum á þessu tímabili og heldur sig við sína menn enn. Þegar heim var komið flutti hann í Hafnarfjörð og vinnur núna í Vídeómarkaðnum í Hamraborg í Kópavogi.

Helstu áhugamál Svavars Þórs eru að spila keilu. „Ég sökkti mér í keilu þegar ég kom heim og hef rosalega gaman af því. Ég hef verið að keppa fyrir ÍR, og svo hef ég sinnt sjálfboðavinnu í tengslum við keiluna.“

Undanfarin tvö ár hefur Svavar Þór einnig verið í Kiwanisklúbbnum Eldey í Kópavogi og verið virkur í fjáröflunum fyrir klúbbinn.


Fjölskylda Svavar Þór er trúlofaður Dögg Guðnadóttur, f. 1976, kirkjuverði í Áskirkju. Þau búa í Hafnarfirði. Svavar Þór á dótturina Christinu Sæunni, f. 2009, sem býr í Rúmeníu, og Dögg á soninn Bjart Eld, f. 2004.