Tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson mætti í Ísland vaknar á K100 og sagði frá ferðalögum sínum til óvenjulegra áfangastaða, þar sem hann leitar frekar að menningu og mannlífi en hefðbundnu fríi. Hann lýsti meðal annars dvöl á Tenerife sem…

Tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson mætti í Ísland vaknar á K100 og sagði frá ferðalögum sínum til óvenjulegra áfangastaða, þar sem hann leitar frekar að menningu og mannlífi en hefðbundnu fríi. Hann lýsti meðal annars dvöl á Tenerife sem atferlisrannsókn og sagði frá ferð til Indónesíu, þar sem hann sá Kómódódreka. „Maður reynir að prófa og upplifa allt. Því skringilegra því betra,“ sagði Erpur, sem stefnir á Rúanda. Hann ræddi einnig um væntanlega afmælistónleika XXX Rottweilerhunda sem verða í Laugardalshöll 24. maí.

Viðtalið má sjá á K100.is.