Hugrún Halldórsdóttir fæddist 24. mars 1945. Hún lést 24. apríl 2025. Útför Hugrúnar fór fram 6. maí 2025.

Elskuleg systir mín Hugrún Halldórsdóttir hefur kvatt þennan heim, eftir erfið veikindi. Hún lést á sumardaginn fyrsta. Það var sárt að fylgjast með hvernig sjúkdómurinn (alzheimer) náði yfirhöndinni. En miðað við þennan sjúkdóm þá var yndislegt að hún skyldi alltaf muna eftir okkur systrum þegar við heimsóttum hana, og svo mundi hún líka nöfn allra barna sinna. Endalaust spurði hún um Andrés eiginmann sinn, ef hann brá sér eitthvað frá.

Við systurnar áttum ógleymanlegar stundir í gegnum árin, sérstaklega sumarbústaðarferðirnar þar sem við föndruðum og skemmtum okkur saman. Hugrún var ætíð létt í lund og afskaplega góð systir. Hún var snillingur í öllu sem viðkom handverki, sótti hún mörg námskeið í handverki, t.d. glerlist og málun, og skildi eftir sig mörg glæsileg listaverk. Hún var snillingur í öllu sem viðkom matargerð, að ég tali nú ekki um brauðterturnar, sem voru á heimsmælikvarða.

Þín verður sárt saknað elsku systir. Blessuð sé minning þín.

Ég sendi Andrési og börnum mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Þín systir,

Sigrún Halldórsdóttir.