Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Leikmaður enska knattspyrnuliðsins Nottingham Forest liggur á sjúkrahúsi með lífshættulega innvortis áverka.
Hann rakst harkalega á aðra markstöngina í leik gegn Leicester um síðustu helgi með þeim afleiðingum að ristillinn sprakk.
Í aðdraganda atviksins var samherji hans augljóslega rangstæður en aðstoðardómari lyfti ekki flaggi sínu, vegna breytinga sem gerðar voru á rangstöðureglunum fyrir nokkrum árum.
Samkvæmt þeim eiga aðstoðardómarar að bíða með að flagga, þegar ekki er um augljósa rangstöðu að ræða, þar til í ljós kemur hvernig sóknin endar. Þá sé tekin afstaða til atviksins með VAR, myndbandadómgæslunni margumtöluðu, sé þess þörf.
Margir vöruðu við því að þessi breyting kallaði á aukna slysahættu leikmanna og sú hefur verið raunin. Af og til hafa leikmenn meiðst illa í atvikum í kjölfar rangstöðu sem ekki var dæmd strax.
Mikilli ábyrgð var kastað á herðar aðstoðardómaranna og það er skiljanlegt að þeir vilji ekki taka þá áhættu að lyfta flagginu of snemma og vera skammaðir fyrir að ræna framherja dauðafæri eða marki.
Þessi regla virkar vel þegar um er að ræða hárfína rangstöðu sem erfitt er að skera úr um nema með VAR. En hún er beinlínis hættuleg þegar ekki er flaggað á augljósa rangstöðu. Eins og þetta alvarlegasta tilvik til þessa ber vitni um.
Ég ætla rétt að vona að búið verði að lagfæra þetta þegar VAR verður tekið upp á Íslandi.