Dómnefnd ársins Carlos Reygadas frá Mexíkó, Payal Kapadia frá Indlandi, Dieudo Hamadi frá Kongó, Jeremy Strong frá Bandaríkjunum, Juliette Binoche frá Frakklandi, Alba Rohrwacher frá Ítalíu, Leila Slimani frá Frakklandi og Marokkó, Halle Berry frá Bandaríkjunum og Hong Sang-Soo frá Suður-Kóreu skipa alþjóðlega dómnefnd hátíðarinnar í Cannes í ár. Þau mættu á setningu hátíðarinnar þar sem kvikmyndin Partir un jour var frumsýnd.
Dómnefnd ársins Carlos Reygadas frá Mexíkó, Payal Kapadia frá Indlandi, Dieudo Hamadi frá Kongó, Jeremy Strong frá Bandaríkjunum, Juliette Binoche frá Frakklandi, Alba Rohrwacher frá Ítalíu, Leila Slimani frá Frakklandi og Marokkó, Halle Berry frá Bandaríkjunum og Hong Sang-Soo frá Suður-Kóreu skipa alþjóðlega dómnefnd hátíðarinnar í Cannes í ár. Þau mættu á setningu hátíðarinnar þar sem kvikmyndin Partir un jour var frumsýnd. — AFP/Bertrand Guay
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Cannes er haldin í 78. sinn í ár. Hún hófst með viðhöfn í fyrradag og stendur til 24. maí. Þá skýrist hvaða myndir standa upp úr að mati dómnefndar, sem franska leikkonan Juliette Binoche fer fyrir. Meðal þeirra mynda sem sýndar verða í ár eru Mission: Impossible – The Final Reckoning og Partir un jour. Robert De Niro hlýtur gullheiðurspálma hátíðarinnar að þessu sinni.