Dmytro Udovychenko
Dmytro Udovychenko
Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur hinn óviðjafnanlega fiðlukonsert Tsjajkovskíjs á tónleikum í Eldborg Hörpu í kvöld, fimmtudag, klukkan 19.30 að því er kemur fram í tilkynningu um viðburðinn. Segir þar einnig að konsertinn geymi ógleyman­legar…

Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur hinn óviðjafnanlega fiðlukonsert Tsjajkovskíjs á tónleikum í Eldborg Hörpu í kvöld, fimmtudag, klukkan 19.30 að því er kemur fram í tilkynningu um viðburðinn.

Segir þar einnig að konsertinn geymi ógleyman­legar laglínur og miklar ástríður, enda saminn á umbrotatíma í lífi tónskáldsins. Einleikari er úkraínski fiðluleikarinn Dmytro Udovychenko, sem þykir einn mest spennandi fiðluleikari heims af yngri ­kynslóðinni. „Tónleikarnir hefjast á verkinu ­ODTAA (One Damn Thing After Another) eftir ­Doreen Carwithen, eitt fyrsta kvenkvikmyndatónskáld sögunnar. Eftir hlé flytur hljómsveitin fjórðu sinfóníu Brahms en hún er uppfull af andstæðum og geymir jafnt hlýju og nístandi sársauka.“ Þá mun stjórnandinn Andrew Manze halda um tónsprotann.