40 ára Vilhjálmur er frá Miklabæ í Blönduhlíð í Skagafirði en býr í Varmahlíð. Eftir grunnskólann fór hann til Akureyrar og varð stúdent frá MA og fór síðan í Tækniskólann. Hann er menntaður rafvirki og flugvirki og starfar í dag sem rafvirki hjá Landsvirkjun

40 ára Vilhjálmur er frá Miklabæ í Blönduhlíð í Skagafirði en býr í Varmahlíð. Eftir grunnskólann fór hann til Akureyrar og varð stúdent frá MA og fór síðan í Tækniskólann. Hann er menntaður rafvirki og flugvirki og starfar í dag sem rafvirki hjá Landsvirkjun.

Vilhjálmur hefur mikinn áhuga á íþróttum, ekki samt hestaíþróttum, þótt Vindheimamelar séu í næsta nágrenni. Hann fer mikið á handboltamót, svo styður hann sína menn í Tindastóli í körfuboltanum. Í enska boltanum heldur hann með Liverpool.

Fjölskylda Eiginkona Vilhjálms er Sirrý Sif Sigurlaugardóttir, f. 1986, félagsráðgjafi í doktorsnámi. Þau eiga börnin Freyju,
f. 2012, og Frosta, f. 2015, nema í Varmahlíðarskóla.