Blomberg-Lippe Díana Dögg og Andrea fara aftur til Dortmund.
Blomberg-Lippe Díana Dögg og Andrea fara aftur til Dortmund. — Ljósmynd/Aleksandar Djorovic
Landsliðskonurnar Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir eru enn með í baráttunni um þýska meistaratitilinn í handbolta eftir að Blomberg-Lippe sigraði Dortmund, 27:25, í öðrum undan­úrslitaleik liðanna í gærkvöld

Landsliðskonurnar Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir eru enn með í baráttunni um þýska meistaratitilinn í handbolta eftir að Blomberg-Lippe sigraði Dortmund, 27:25, í öðrum undan­úrslitaleik liðanna í gærkvöld. Dortmund vann fyrsta leikinn á heimavelli sínum, 37:30, en liðin fara nú aftur til Dortmund og mætast þar í oddaleik. Andrea skoraði tvö mörk í gær og átti eina stoðsendingu. Díana skoraði ekki en átti þrjár stoðsendingar.