Ísland verður í þriðja styrkleikaflokki af fjórum þegar dregið verður næsta fimmtudag í riðlana fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Hollandi og Þýskalandi í nóvember og desember.
Íslenska liðið hækkar sig því um flokk þar sem það var í fjórða og neðsta flokki fyrir síðasta heimsmeistaramót árið 2023.
Þetta getur skipt sköpum því þrjú lið af fjórum úr hverjum átta riðlanna komast áfram í milliriðla á meðan neðsta liðið fer í Forsetabikarinn. Hlutskipti íslenska liðsins á HM 2023 var einmitt að fara í Forsetabikarinn og þar stóð það uppi sem sigurvegari.
Eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki fer í hvern riðil mótsins en flokkarnir eru þannig skipaðir:
Fyrsti flokkur: Frakkland, Noregur, Danmörk, Ungverjaland, Svíþjóð, Holland, Þýskaland, Svartfjallaland.
Annar flokkur: Pólland, Brasilía, Serbía, Rúmenía, Sviss, Spánn, Austurríki, Angóla.
Þriðji flokkur: Tékkland, Japan, Senegal, Ísland, Argentína, Færeyjar, Suður-Kórea, Túnis.
Fjórði flokkur: Egyptaland, Úrúgvæ, Kasakstan, Paragvæ, Íran, Kúba, Kína, Króatía.
Króatía yrði væntanlega erfiðasti mótherjinn úr fjórða flokki en króatíska liðið fékk aukasæti á mótinu eftir að það komst ekki í gegnum undankeppnina.
Dregið er í hollensku borginni d’Hertogenbosch sem er annar tveggja keppnisstaða í Hollandi.