„Grafgata“ væri skemmtilegt götunafn nærri kirkjugarði. Er þó ekki til nema í fleirtölu, grafgötur, og þýðir djúpar, niðurgrafnar götur. En orðtakið að fara í grafgötur um e-ð merkir að leita e-s vandlega

„Grafgata“ væri skemmtilegt götunafn nærri kirkjugarði. Er þó ekki til nema í fleirtölu, grafgötur, og þýðir djúpar, niðurgrafnar götur. En orðtakið að fara í grafgötur um e-ð merkir að leita e-s vandlega. Og þegar ekki þarf að leita er ekki um að villast: „Enginn fer í grafgötur um það að ríkisstjórnin er verkfæri hins illa.“