Norður ♠ 6 ♥ K9542 ♦ K103 ♣ 9872 Vestur ♠ D1052 ♥ 87 ♦ DG852 ♣ Á10 Austur ♠ G83 ♥ 10 ♦ Á964 ♣ KDG64 Suður ♠ ÁK974 ♥ ÁDG63 ♦ 7 ♣ 63 Suður spilar 4♥

Norður

♠ 6

♥ K9542

♦ K103

♣ 9872

Vestur

♠ D1052

♥ 87

♦ DG852

♣ Á10

Austur

♠ G83

♥ 10

♦ Á964

♣ KDG64

Suður

♠ ÁK974

♥ ÁDG63

♦ 7

♣ 63

Suður spilar 4♥.

Bridssamband Evrópu heldur árlega einskonar smáþjóðaleika. Þar er þó ekki miðað við mannfjölda heldur skráða bridsspilara í hverju landi, sem mega ekki vera fleiri en 750. Þess vegna getur Ísland ekki tekið þátt í þessum leikum.

Leikarnir nú fóru fram í Rúmeníu. Litháen fór með sigur af hólmi en flestar þátttökuþjóðirnar voru frá austurhluta Evrópu. Í spilinu að ofan fengu Litháar sveiflu í leik gegn nágrönnum sínum í Lettlandi. Við annað borðið opnaði Lettinn í austur á 1♣ og eftir það fengu Andrei Arlovich og Erikas Vanikonis í NS að mestu frið og enduðu í 4♥ sem unnust slétt. Við hitt borðið opnaði Jerzy Skrzypczak á 1♦ í austur, suður sagði 1♠ og Boguslaw Gerulski í vestur sýndi góða tígulhækkun. Það nægði Skrzypczak til að fórna í 5♦ yfir 4♥ en andstæðingarnir gleymdu að dobla og hann slapp tvo niður.