Ungur Clément Faveau fer með hlutverk hins unga Totones í myndinni.
Ungur Clément Faveau fer með hlutverk hins unga Totones í myndinni.
Franska kvikmyndin Vingt dieux, sem hlotið hefur mikla athygli í heimalandinu, verður frumsýnd í kvöld í Bíó Paradís kl. 21 undir enska titlinum Holy Cow

Franska kvikmyndin Vingt dieux, sem hlotið hefur mikla athygli í heimalandinu, verður frumsýnd í kvöld í Bíó Paradís kl. 21 undir enska titlinum Holy Cow. Segir um viðburðinn að um sé að ræða áhrifamikla mynd sem frumsýnd hafi verið á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem hún hreppti Ungmennaverðlaunin (Youth Award) árið 2024 ásamt því að vinna hin virtu César-verðlaun fyrir bestu fyrstu mynd í fullri lengd. Þar er fylgt eftir hinum áhyggjulausa unglingi Totone sem eyðir dögum sínum í dans og drykkju. Þegar hann þarf svo skyndilega að sjá fyrir sjö ára systur sinni neyðist hann til að taka ábyrgð og í leit að tekjum fer hann að framleiða úrvals comté-ost til að eiga möguleika á að vinna peningaverðlaun í ostasamkeppni.