Íslandsmeistarar Þóra Kristín Jónsdóttir og Lovísa Björt Henningsdóttir hefja Íslandsmeistarabikarinn á loft.
Íslandsmeistarar Þóra Kristín Jónsdóttir og Lovísa Björt Henningsdóttir hefja Íslandsmeistarabikarinn á loft. — Morgunblaðið/Eggert
„Líðanin er svakaleg. Maður svífur um á einhverju bleiku skýi hérna. Ég mætti í vinnuna og er að reyna að einbeita mér en það gengur ekki vel!“ sagði Þóra Kristin Jónsdóttir, fyrirliði Íslandsmeistara Hauka í körfuknattleik, er Morgunblaðið náði tali af henni í hádeginu í gær

Körfubolti

Gunnar Egill Daníelsson

gunnaregill@mbl.is

„Líðanin er svakaleg. Maður svífur um á einhverju bleiku skýi hérna. Ég mætti í vinnuna og er að reyna að einbeita mér en það gengur ekki vel!“ sagði Þóra Kristin Jónsdóttir, fyrirliði Íslandsmeistara Hauka í körfuknattleik, er Morgunblaðið náði tali af henni í hádeginu í gær.

Þá var aðeins liðinn rétt rúmlega hálfur sólarhringur frá því Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með 92:91-sigri á Njarðvík í ótrúlegum framlengdum oddaleik í Ólafssal á Ásvöllum.

Þóra Kristín, sem er 28 ára bakvörður, er uppalin hjá Haukum og hefur leikið með liðinu stærstan hluta ferilsins, en lék í Danmörku í þrjú ár og nokkru áður hálft tímabil með Skallagrími í Borgarnesi. Hún sagði það sérlega sætt að leiða uppeldisfélagið til Íslandsmeistaratitils sem fyrirliði.

Spiluðum betri vörn

„Já, það er geggjað. Við erum með geggjaðan hóp. Þó að við höfum bara unnið með einu stigi þá small þetta í leiknum í gær [á þriðjudagskvöld]. Við fengum framlag frá svo ótrúlega mörgum. Það var geggjað.“

Hvað heldurðu að hafi skilað sigrinum að lokum?

„Við spiluðum betri vörn en í síðustu tveimur leikjum og hittum úr skotunum okkar, sem var kannski ekki alveg að ganga í leikjunum á undan. Svo var alvöru liðsstemning,“ sagði Þóra Kristín.

Sjálf átti hún sannkallaðan stórleik í oddaleiknum sem réð úrslitum. Þóra Kristín var stigahæst hjá Haukum með 25 stig. Þar af setti hún niður sjö þriggja stiga körfur úr 11 slíkum tilraunum.

„Ég var mjög sátt við þetta og það var geggjað að hitta úr þessum skotum,“ sagði Þóra Kristín um eigin frammistöðu í oddaleiknum og bætti við að hún væri sátt við framlag sitt á nýafstöðnu tímabili.

Vildi gera betur en í fyrra

„Já, klárlega. Ég er mjög stolt af þessu en það var líka smá markmið hjá mér að gera betur en í fyrra. Mér finnst ég hafa komið því til skila, sem var mjög gott.“

Við þessi orð varð blaðamaður þess áskynja að Þóra Kristín hefði verið ósátt við eigin frammistöðu á tímabilinu á undan. Viðurkenndi hún að svo væri.

„Já, ég held að ég geti alveg sagt það. Mér fannst ég einhvern veginn svolítið týnd og ekki þora að taka af skarið, ekki þora að vera besta útgáfan af sjálfri mér. Ég var dugleg að vinna í því síðasta sumar og í vetur.“

Fyrirætlanir um að gera betur á þessu tímabili samanborið við tímabilið á undan heppnuðust svona líka vel þar sem Þóra Kristín var kjörin besti leikmaður úrvalsdeildarinnar að deildarkeppninni lokinni í vor. Hún skoraði 11,3 stig að meðaltali í leik á tímabilinu og átti 7,1 stoðsendingu að meðaltali.

Ekki pollróleg fyrir oddaleik

Úrslitaeinvígið við Njarðvík reyndist einfaldlega frábær skemmtun. Haukar byrjuðu það af feiknakrafti og komust í 2:0. Njarðvíkingar bitu í skjaldarrendur og jöfnuðu metin í 2:2 til þess að knýja fram oddaleik. Aðeins eitt stig skildi að lokum á milli liðanna eftir framlengingu í oddaleiknum og Íslandsmeistaratitillinn fór í Hafnarfjörðinn.

„Þetta var mjög góð sería og frábært Njarðvíkurlið sem við spiluðum á móti. Bæði lið voru að finna veikleika hjá hvort öðru og reyna að nýta þá auk þess að spila upp á sína eigin styrkleika. Þetta var alls konar skák sem endaði einhvern veginn okkar megin,“ útskýrði hún.

Þóra Kristín viðurkenndi að það hefði aðeins farið um Hauka eftir að Njarðvík jafnaði metin í 2:2 í einvíginu.

„Auðvitað fer maður ekkert pollrólegur inn í svona leik, oddaleik. Við þurftum að gíra okkur vel inn í leikinn og búa til alvöru stemningu hjá okkur til þess að klára þetta, sem við gerðum. Ég er mjög stolt af því.“

Möguleiki um mitt tímabil

Bjuggust Haukar við því að standa uppi sem Íslandsmeistarar áður en tímabilið fór af stað?

„Auðvitað vonuðum við það. Við sömdum við Lore [Devos] frekar snemma. Það lyfti okkur aðeins hærra. Svo var maður alltaf að vonast til þess að þetta myndi gerast. Það var kannski um mitt tímabil þar sem maður gat leyft sér að hugsa að þetta væri alveg möguleiki,“ sagði hún.

Þóra Kristín kvaðst ekki vita hvort reikna mætti með Haukum enn sterkari á næsta tímabili enda svo stutt síðan þetta tímabil rann sitt skeið.

„Það er erfitt að segja. Við höfum bara verið að einbeita okkur að því að klára þetta tímabil. Ég er ekki með neinar upplýsingar um framhaldið eins og er. Það verður bara að koma í ljós á næstu dögum.“

Samningur hennar við Hauka er við það að renna út og sagðist Þóra Kristín því ekki vera samningsbundin sem stendur. Spurð hvort hún reiknaði með því að vera áfram hjá uppeldisfélaginu sagði Þóra Kristín:

Haukar eru heima fyrir mér

„Ég er ekkert búin að hugsa neitt út í það en Haukar eru alltaf heima fyrir mér þannig að það væri auðvelt að vera þar áfram.“

Hún lék sem atvinnumaður með Falcon í dönsku úrvalsdeildinni frá 2021 til 2023 og varð þar Danmerkurmeistari bæði tímabilin og danskur bikarmeistari fyrra tímabilið.

Er atvinnumennska eitthvað sem þú ert að skoða á þessum tímapunkti?

„Svona já og nei. Maður skoðar öll tilboð sem maður fær og þarf svo að taka stöðuna hverju sinni, vega og meta. Ég er í vinnu hérna heima sem mig langar ekkert að hætta í. Það væri þá spurning hvort ég gæti tekið hana með mér eða eitthvað slíkt.

En það verður bara að koma í ljós. Ég er ekki með neitt í höndunum eins og er. Að öllum líkindum verð ég áfram heima,“ sagði Þóra Kristín að lokum í samtali við Morgunblaðið.

Höf.: Gunnar Egill Daníelsson