Boston Jayson Tatum hjálpað af velli eftir óhappið í New York.
Boston Jayson Tatum hjálpað af velli eftir óhappið í New York. — AFP/Elsa
Jayson Tatum, stærsta stjarna ríkjandi NBA-meistara Boston Celtics í körfuknattleik, varð fyrir því óláni að slíta hásin á hægri fæti þegar liðið tapaði fyrir New York Knicks í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar

Jayson Tatum, stærsta stjarna ríkjandi NBA-meistara Boston Celtics í körfuknattleik, varð fyrir því óláni að slíta hásin á hægri fæti þegar liðið tapaði fyrir New York Knicks í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Strax var óttast hið versta þegar Tatum lá sárþjáður á vellinum og hélt um hásinina. Félagið hefur nú staðfest að meiðslin hafi verið þetta alvarleg. New York var yfir, 3:1, fyrir fimmta leik liðanna sem fram fór í nótt.