Karlakórinn Kyrja býður sænska karlakórinn Svanholm Singers velkominn til liðs við sig á tónleikum í Aðventkirkjunni laugardaginn 17. maí kl. 16, að því er segir í tilkynningu. „Saman flytjum við efnisskrá tileinkaða Norðurlöndunum, frá sígildum verkum Edvards Grieg og Ola Gjeilo til glænýrra tónsmíða frá Grænlandi og víðar, með sérstaka áherslu á minnstu samfélög á jaðri hins byggilega heims. Margt sameinar þjóðir Íslands og Svíþjóðar en einkum ást okkar á söng. Því leiðum við hesta þessara nágranna saman og fögnum sameiginlegri söngmenningu.“ Segir þar einnig að Svanholm Singers, undir stjórn Sofiu Söderberg, sé leiðandi afl í sænskri kórtónlist og hafi unnið til margra verðlauna. Þá hafi kórinn unnið með fjölda listamanna og flutt tónlist sína víða um heim. Kyrja var stofnaður árið 2022 með það að markmiði að færa út kvíar kórtónlistar en listrænir stjórnendur eru Philip Barkhudarov og Sólveig Sigurðardóttir.