Úrslit Magnús Óli Magnússon hjá Val og Rúnar Kárason hjá Fram í leik liðanna á síðasta tímabili.
Úrslit Magnús Óli Magnússon hjá Val og Rúnar Kárason hjá Fram í leik liðanna á síðasta tímabili. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Mér líst vel á úrslitaeinvígið og finnst það skemmtilegt. Þetta eru tvö frábær lið,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson, fráfarandi þjálfari karlaliðs Hauka í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið er hann var beðinn um að rýna í úrslitaeinvígi Vals og Fram um Íslandsmeistaratitil karla

Handbolti

Gunnar Egill Daníelsson

gunnaregill@mbl.is

„Mér líst vel á úrslitaeinvígið og finnst það skemmtilegt. Þetta eru tvö frábær lið,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson, fráfarandi þjálfari karlaliðs Hauka í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið er hann var beðinn um að rýna í úrslitaeinvígi Vals og Fram um Íslandsmeistaratitil karla.

Fyrsti leikurinn fer fram á Hlíðarenda í kvöld. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

„Mér finnst Framararnir hafa komið svolítið á óvart í vetur. Þeir urðu bikarmeistarar og eru því á helvíti góðri siglingu. Einar [Jónsson þjálfari] er að gera frábæra hluti með þá. Valsararnir eru búnir að vera mjög, mjög öflugir undanfarin ár þannig að rimman er afar spennandi. Þetta verður mjög jafnt held ég,“ sagði Ásgeir Örn.

Valur kom sér í úrslitin með því að leggja Aftureldingu 3:2 í undanúrslitum og Stjörnuna 2:0 í átta liða úrslitum. Fram lagði ríkjandi Íslandsmeistara FH 3:1 í undanúrslitum og Hauka 2:0 í átta liða úrslitum.

Býst við og vonast eftir jöfnu einvígi

Spurður hvernig hann sæi fyrir sér að einvígi Vals og Fram muni koma til með að þróast, sagði Ásgeir Örn:

„Ég held að þetta verði mjög jafnt. Ég held það því mér finnst eins og liðin séu frekar álík. Svo væri það líka gaman fyrir handboltann að fá fimm flotta leiki. Það verða vonandi framlengingar, drama og alls konar. Ég á bæði von á því að þetta verði jafnt og ég vona að þetta verði jafnt.“

Aðeins eitt stig skildi á milli Vals og Fram í úrvalsdeildinni á tímabilinu þar sem Valur hafnaði í öðru sæti með 32 stig og Fram var í fjórða sæti með 31 stig. Ásgeir Örn var beðinn um að meta styrkleika og veikleika liðanna.

Valur býr að reynslunni

„Hjá Völsurunum myndi ég fyrst og fremst nefna að þeir eru með leikmenn sem hafa verið í þessari stöðu áður, sem eru búnir að spila fullt af stórum leikjum. Þeir unnu Evrópukeppni í fyrra og hafa nokkrum sinnum orðið Íslandsmeistarar á síðustu fimm árum.

Ég held að þeir búi töluvert mikið að því. Þeir eru með þjálfara sem hafa farið í gegnum þetta margoft. Ég held að það sé þeirra helsti styrkleiki.

Veikleikarnir hjá Völsurunum eru helst að þeir hafa verið svolítið brokkgengir. Þeir hafa ekki verið alveg jafn stöðugir í sinni frammistöðu eins og þeir hafa verið undanfarin ár. Þeir hafa ekki alveg náð að keyra áfram á þessum þétta og góða varnarleik sem hefur verið.

Það hefur bitnað á því að þeir hafa ekki alveg náð að keyra tempóið upp jafn vel og þeir hafa gert og verið þekktir fyrir undanfarin ár.

Ekki það að þeir keyra hratt, en ekki alveg jafn mikið og þeir hafa verið að gera. Ég held að það sé það sem ég myndi nefna hjá Völsurunum,“ sagði hann um Val.

Fram með geggjað sóknarlið

„Það talar dálítið inn í styrkleikana og veikleikana hjá Frömurunum því þeir eru frábærir sóknarlega. Þetta er geggjað sóknarlið. Þeir eru bæði hraðir og skemmtilegir með geggjaða sóknarmenn.

Framan af deildarkeppninni að minnsta kosti hafa þeir kannski ekki verið með alveg massífan varnarleik en þeir voru reyndar alveg frábærir varnarlega á móti FH í undanúrslitunum. Kannski er það bara búið að smella hjá þeim.

Markverðirnir komu þá vel inn í þetta þannig að ég myndi segja að þeir væru á mjög góðum stað hvað þetta varðar. Ég held að það sé samt engin spurning um það að sóknarleikurinn með Reyni [Þór Stefánsson] og Rúnar [Kárason] í fararbroddi er klárlega þeirra styrkleiki,“ sagði Ásgeir Örn um Fram.

Hann telur lítinn mun á liðunum. Spurður hvort honum þætti annað liðið sigurstranglegra, sagði Ásgeir Örn að lokum:

„Ég veit það ekki. Ég held að þetta verði mjög jafnt. Ég hef samt einhverja tilfinningu fyrir því í maganum að Valsararnir séu einhvern veginn örlítið framar, svona hálfu skrefi. Örlítið líklegri.“

Einvígi Vals og Fram

Liðin mætast á Hlíðarenda í kvöld klukkan 19.30. Næsti leikur er mánudagskvöldið 19. maí í Úlfarsárdal og sá þriðji á Hlíðarenda fimmtudagskvöldið 22. maí. Fjórði leikur færi fram í Úlfarsárdal 25. maí og ef kemur til oddaleiks fer hann fram á Hlíðarenda miðvikudagskvöldið 28. maí.

 Valsmenn enduðu í öðru sæti úrvalsdeildarinnar í vetur með 32 stig, þremur stigum á eftir deildarmeisturum FH, og Framarar enduðu í fjórða sæti með 31 stig, jafnmörg og Afturelding sem endaði í þriðja sæti.

 Valur vann Aftureldingu 3:2 í undanúrslitum og Fram vann FH 3:1. Áður höfðu Valsmenn unnið Stjörnuna og Fram unnið Hauka í átta liða úrslitum, bæði einvígin enduðu 2:0.

 Valur hefur 24 sinnum orðið Íslandsmeistari karla, fyrst árið 1940 og síðast árið 2022.

 Fram hefur 10 sinnum orðið Íslandsmeistari karla, fyrst árið 1950 og síðast árið 2013.

 Úlfar Páll Monsi Þórðarson er markahæstur Valsmanna á Íslandsmótinu í vetur með 166 mörk í 28 leikjum. Bjarni í Selvindi hefur skorað 141 mark í 29 leikjum og Ísak Gústafsson 84 mörk í 23 leikjum.

 Reynir Þór Stefánsson er markahæstur Framara í vetur með 197 mörk í 28 leikjum. Ívar Logi Styrmisson hefur skorað 124 mörk í 26 leikjum og Rúnar Kárason er með 108 mörk í 24 leikjum.

Höf.: Gunnar Egill Daníelsson