Magnús Þór Bjarnason fæddist 15. maí 1975 á Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði. „Fyrstu minningarnar tengjast Ísafirði og fyrsta heimilinu á Túngötu 13 og Sjónarhæð hjá ömmu Dóru.“
Þegar Magnús var sjö ára fór fjölskyldan á flakk og flutti einn vetur til Seyðisfjarðar þar sem Magnús var einn vetur í grunnskólanum. „Ég man svo vel eftir þessum tíma, því Stuðmenn voru nýbúnir að taka upp mynd í bænum sem var frumsýnd þarna um vorið.“ Þá fór fjölskyldan til Kópavogs og Magnús fór í Kópavogsskóla. „Við bjuggum í Hamraborginni og það voru þvílík viðbrigði að fara úr litlu bæjarfélagi og í Hamraborgina sem var eiginlega mekka pönksins,“ segir Magnús og minnist þess að Keflavíkurgangan hafi farið í gegnum Kópavoginn, sem honum hafi þótt mjög spennandi.
Magnús gekk einnig í Æfingaskóla Kennaraháskólans þegar fjölskyldan fór til Reykjavíkur en þegar hann var tíu ára var ævintýraþrá fjölskyldunnar fullnægt og tími til að fara aftur heim á Ísafjörð. „Það var frábært að koma aftur heim,“ segir Magnús og hann fór að æfa sund, var á skíðum og gerðist skáti og lauk grunnskólanum á Ísafirði. Á sumrin var hann hjá afa sínum og ömmu á Reyðarfirði, sem var mjög skemmtilegt umhverfi fyrir börn. „Við vorum alltaf úti að leika krakkarnir og þegar nálgaðist háttatímann um níuleytið var byrjað að góla á krakkana að koma inn frá öllum húsunum.“ Magnús segir að hann hafi ferðast mikið um Austfirðina með afa sínum og ömmu því afi hans hafði verið verið vörubílstjóri og þekkt alla í sveitunum í kring.
Hann ákvað að fara suður í Fjölbrautaskólann í Breiðholti og segir það hafa verið mikil viðbrigði. „Fyrst þegar ég kom suður fann ég fyrir einmanaleika, sem mér fannst skrýtið að upplifa í þessum stærsta framhaldsskóla landsins.“ Hann ákvað að hella sér í félagslífið í skólanum og fann sig í ljósmyndun og eignaðist marga góða félaga. Á sumrin fór hann alltaf vestur og vann í fiski í Norðurtanganum.
Hann útskrifaðist af félagsfræðibraut 1996 og fór í viðskiptafræði í Háskóla Íslands og útskrifaðist af markaðs- og stjórnunarsviði. „Þá var ég búinn að kynnast Auði, konunni minni, og ég elti hana til Svíþjóðar.“ Þar fór Magnús í meistaranám í Gautaborgarháskóla í alþjóðlegum viðskiptum. Þau komu heim frá Svíþjóð 2005 og Magnús fór að vinna hjá Nýsi hf. sem hann segir að hafi verið góð reynsla og hann hafi kynnst þar mörgu góðu fólki. En þegar allt fór á hvolf í hruninu fluttu þau norður á Akureyri, í heimabæ Auðar, og þar vann Magnús hjá Gránufélaginu og síðar ýmis störf í Reykjavík áður en þau ákváðu að flytja vestur á Ísafjörð árið 2013. Þar fór Magnús fyrst að vinna hjá Ísafjarðarbæ og í sjómennsku áður en hann var ráðinn verkefnastjóri hjá Vestfjarðastofu. „Það eru mjög spennandi tímar hérna fyrir vestan og bæði uppgangur í ferðaþjónustu og fisk- og lagareldið hefur snúið við atvinnuþróuninni hérna,“ segir Magnús og segir mjög skemmtilegt að starfa hjá Vestfjarðastofu.
Helstu áhugamál Magnúsar fyrir utan starfið eru kajak-sportið og blak. „Það er dásamlegt að fara á kajak út á sjó og tæma alveg hugann. Það er eins og hugleiðsla þar sem maður er samt tengdur við náttúruna,“ segir hann.
„Síðan dró konan mín mig í blak, en hún hafði stundað þá íþrótt sem stelpa á Akureyri, og hún laug mig inn á blakæfingar þegar ég var rétt orðinn fertugur.
Þannig að ég er búinn að æfa blak undanfarin tíu ár með félaginu Skelli í öldungablaki og hef ekki misst af öldungamóti síðan. Við unnum gull á síðasta móti,“ segir hann og hlær og bætir við að svo sé félagsskapurinn líka frábær.
Magnús og Auður keyptu eldra hús á Ísafirði 2014 og þau hafa verið að gera það upp, en Magnús er mikill fjölskyldumaður. „En svo er samvera og ferðalög með fjölskyldunni í miklu uppáhaldi, ekki síst þegar stelpurnar eru farnar að búa sig undir að fara að heiman. Þá verða þessar stundir enn mikilvægari.“
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar er Auður Dóra Franklín, f. 26.7. 1981, lífeindafræðingur. Foreldrar hennar eru Jónas Franklín, f. 29.9. 1947, kvensjúkdómalæknir í Svíþjóð, og Sigurlaug Vigfúsdóttir, alltaf kölluð Silla, f. 9.2. 1950, lífeindafræðingur. Þau skildu.
Dætur Magnúsar og Auðar Dóru eru Rósa María Franklín Magnúsdóttir, f. 27.5. 2007, nemi; 2) Sylvía Rán Franklín Magnúsdóttir, f. 4.8. 2009, nemi; og 3) Katla Rut Franklín Magnúsdóttir, f. 8.9. 2016, nemi.
Uppeldissystir Magnúsar er Halldóra Magnea Fylling, f. 23.2. 1972, starfsmaður FISK á Sauðárkróki, en þau eru systkinabörn.
Foreldrar Magnúsar eru Rósa Kristbjörg Magnúsdóttir, f. 4.12. 1955, vann hjá Íþróttahúsum Ísafjarðarbæjar, og Bjarni Steingrímsson, f. 12.3. 1953, fv. vörubílstjóri. Stjúpfaðir Magnúsar er Guðbjartur Jónasson, f. 22.12. 1956, fv. starfsmaður Húsasmiðjunnar.