Kjartan Magnússon
Kjartan Magnússon
Best og hagkvæmast er að stórbæta strax núverandi kerfi strætisvagna í stað þess að bíða fram á næsta áratug eftir rándýrri borgarlínu.

Kjartan Magnússon

Mjög verður þrengt að bílaumferð í Reykjavík ef áform vinstriflokkanna um borgarlínu ná fram að ganga. Hægt yrði að ná markmiðum um bættar almenningssamgöngur með mun ódýrari og skjótvirkari hætti með eflingu núverandi strætisvagnakerfis.

Fyrsti áfangi borgarlínu á að liggja frá Ártúnshöfða og yfir Elliðaárvog að Vogabyggð. Þaðan mun línan liggja um Suðurlandsbraut og Laugaveg að Hlemmi, um Hverfisgötu og Lækjargötu að Tjörninni og síðan um Fríkirkjuveg, Skothúsveg, Suðurgötu, Sturlugötu og Njarðargötu. Þaðan liggur leiðin fram hjá Landspítalanum, um Hlíðarendahverfið, eftir Nauthólsvegi að fyrirhugaðri Fossvogsbrú og síðan yfir á Kársnes í Kópavogi.

Þrengt að bílaumferð

Borgarlína er dæmi um ofvaxna opinbera framkvæmd, sem skilar takmörkuðum árangri en hefur ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér. Einn helsti pólitíski tilgangur verkefnisins er að þrengja að almennri bílaumferð. Til að koma fyrir sérakreinum borgarlínu á að fækka akreinum fyrir bílaumferð á Suðurlandsbraut úr fjórum akreinum í tvær á stærstum hluta brautarinnar, sem og á Laugavegi frá Kringlumýrarbraut að Katrínartúni.

Þá yrði eftirfarandi götum lokað fyrir bílaumferð að miklu eða öllu leyti: Laugavegi milli Katrínartúns og Hlemms, Hverfisgötu, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi, Skothúsvegi og Sturlugötu.

Áðurnefndar götur gegna nú flestar mikilvægu hlutverki í samgöngukerfi borgarinnar og er ljóst að lokun eða takmörkun þeirra fyrir bílaumferð mun auka á umferðartafir í kerfinu og draga úr skilvirkni þess.

Suðurlandsbraut er mikilvæg

Suðurlandsbraut er ein helsta umferðaræð borgarinnar en um hana fara um 25 þúsund bílar daglega. Gatan er mikilvæg tengibraut milli austurs og vesturs og þjónar fjölmennum íbúðahverfum og fjölsóttum atvinnuhverfum. Fækkun akreina úr fjórum í tvær mun leiða til stóraukinna og kostnaðarsamra umferðartafa.

Við Suðurlandsbraut eru mörg atvinnufyrirtæki og vinsælir veitingastaðir. Þrenging brautarinnar og mikil fækkun bílastæða myndi torvelda aðgang að fyrirtækjunum og hafa neikvæð áhrif á rekstur þeirra.

Mörg fyrirtæki við Suðurlandsbraut og Lágmúla hafa látið í ljós áhyggjur sínar vegna fyrirhugaðrar fækkunar akreina og bílastæða á svæðinu. Bent er á að það skjóti skökku við að þrengja þannig að einu helsta verslunarsvæði borgarinnar, sem treystir aðallega á akandi viðskiptavini. Stjórnendur sumra fyrirtækja þar hafa sagt að með slíkum breytingum yrðu þau knúin til að flytja úr götunni og jafnvel úr Reykjavík.

Svipað má segja um fleiri götur þar sem til stendur að banna eða takmarka bílaumferð. Fríkirkjuvegur, Lækjargata og Hverfisgata gegna allar mikilvægu hlutverki fyrir miðborgina og tengingu hennar við önnur hverfi. Með slíkum breytingum verður gert enn erfiðara en áður við að sækja atvinnu eða þjónustu þar. Bílaumferðin mun ekki hverfa með slíkum umferðartakmörkunum heldur leita í auknum mæli inn í nærliggjandi íbúðahverfi.

Efla þarf almenningssamgöngur

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja stórbæta almenningssamgöngur með því að ráðast strax í miklar endurbætur á núverandi kerfi í stað þess að bíða eftir borgarlínu til ársins 2032.

Framkvæmdakostnaður við borgarlínuverkefnið yrði gífurlegur eða um 134 milljarðar króna að lágmarki. Ljóst er að rekstrarkostnaður yrði einnig mikill. Hægt væri að stórbæta núverandi kerfi strætisvagna fyrir lítinn hluta þeirrar upphæðar með úrbótum á leiðakerfi, lagningu forgangsakreina og auknum forgangi vagna á umferðarljósum.

Fokdýr Fossvogsbrú

Sé alvara að baki yfirlýsingum nýrra ráðherra um aukið aðhald í ríkisfjármálum liggur beint við að endurmeta arðsemi þess að setja vel á annað hundrað milljarða króna í rándýrt borgarlínukerfi til viðbótar strætisvagnakerfinu. Ekki síst þarf að endurmeta þörfina á smíði Fossvogsbrúar, nýframkvæmdar sem kostar ekki undir tíu milljörðum króna. Allt bendir til þess að brúin verði óarðbær og hafi neikvætt núvirði. Hægt væri að koma á góðri strætisvagnatengingu milli Nauthólsvíkur og Kópavogs fyrir lítinn hluta þeirrar upphæðar sem brúin mun kosta.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Höf.: Kjartan Magnússon