Anna Rún Frímannsdóttir
annarun@mbl.is
Hljóð og mynd mætast í Gallery Porti, Laugavegi 31, laugardaginn 17. maí þegar vínylplatan Vatn og raf, nýjasta plata tónlistarmannanna Jóhannesar Birgis Pálmasonar og Árna Grétars Jóhannessonar (Futuregrapher) heitins, verður gefin út samhliða sýningu ljósmyndarans Björgvins Sigurðarsonar, sem stendur til 8. júní. Að sögn Jóhannesar geta gestir upplifað tónlistina af Vatn og raf á opnunarviðburðinum, sem fram fer milli kl. 16 og 18, á sama tíma og þeir sökkva sér niður í myndræna frásögn sem var sköpuð samhliða gerð plötunnar.
Þá verður boðið upp á hlustunarstöð á opnuninni þar sem hægt verður að hlýða á plötuna í heild sinni en einnig munu umhverfishljóð sem tekin voru upp fyrir plötuna hljóma um salinn til að gefa enn meiri nálgun við verkin. „Þetta verkefni er hluti af seríu sem mun bera heitið Hljóðheimar, sem er í rauninni tón- og myndasería, þar sem hljóðum og myndum verður blandað saman í eitt,“ segir Jóhannes, spurður út í samstarfið.
Platan unnin upp úr rafhljóðum úr virkjununum
„Okkur fannst mjög áhugavert með þetta fyrsta verkefni að nálgast vatnið og rafmagnið og búa til hljómplötu sem notaðist eingöngu við rafhljóðfæri. Það var í rauninni upprunalega pælingin á bak við plötuna.“
Segir Jóhannes að í kjölfarið hafi þeir félagarnir nálgast Landsvirkjun til að athuga hvort áhugi væri á samstarfi.
„Þau tóku vel í það og svo hófst skipulagningin en í júní í fyrra fórum við og dvöldum í eina viku í kringum Þjórsársvæðið. Þar fórum við í fjórar virkjanir með ákveðinn hljóðbúnað til að taka upp hin ýmsu hljóð en til þess að ná ákveðnum rafhljóðum þurftum við að nota sérstaka míkrófóna. Með okkur Árna í för var Björgvin ljósmyndari sem tók myndir af ýmsu sem við sáum. Síðan byrjuðum við hægt og rólega að blanda þessu öllu saman en platan er unnin upp úr þessum hljóðum úr virkjununum,“ útskýrir hann.
En hefur þetta einhvern tímann verið gert áður hér á landi?
„Þessi hljóðheimasería er alveg ný af nálinni þar sem eru fyrirhuguð sex tón- og myndverk sem verða unnin á svipaðan máta og þetta verk þó tónlistarlega geti þau farið allt frá raftónlist yfir í frjálsan djass og samtímaklassík.“ Aðspurður að lokum segir Jóhannes þá Björgvin oft hafa unnið saman áður.
„Hann hefur myndað plötuumslög fyrir mig og við höfum skotið tónlistarmyndbönd saman en Bjöggi og Árni þekktust vel líka. Þetta var hins vegar fyrsta verkefnið sem þeir unnu beint saman.“